 Íslandsmeistarar Hauka eru erfiđir heim ađ sćkja

| | 15. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri sćkir Haukana heim á mánudaginnAkureyri sćkir Íslandsmeistara Hauka heim á mánudaginn klukkan 19:00. Bćđi liđ hafa veriđ á hörku siglingu ađ undanförnu en Haukarnir unnu međal annars toppliđ Vals á föstudaginn og geta međ sigri tyllt sér á toppinn. Akureyri hefur hinsvegar unniđ 5 af síđustu 7 leikjum sínum eftir erfiđa byrjun og er ađ klífa upp deildina, ţađ má ţví búast viđ hörkuleik.

Haukar fóru illa međ Akureyri ţegar liđin mćttust í KA-Heimilinu í 4. umferđ Olís deildarinnar í september en Akureyri vann hinsvegar góđan 5 marka sigur ţegar liđin mćttust síđast ađ Ásvöllum. Myndband frá leik liđanna ađ Ásvöllum undir lok síđasta tímabils má sjá hér ađ neđan:
Janus Dađi Smárason fór mikinn ţegar Haukar unnu Val á föstudaginn en hann gerđi 13 mörk á sama tíma og Giedrius Morkunas varđi eins og berserkur í markinu en hann lék einmitt lykilhlutverk ţegar Haukar urđu Íslandsmeistarar. Elíasi Má Halldórssyni má svo ekki gleyma en ţessi fyrrum leikmađur Akureyrar hefur veriđ gríđarlega stór hluti af upprisu Haukanna og ljóst ađ strákarnir ţurfa ađ hafa góđar gćtur á fyrrum liđsfélaga sínum til ađ eiga möguleika á sigri á morgun.
Viđ hvetjum alla Akureyringa fyrir sunnan til ađ mćta á leikinn og styđja liđiđ til sigurs, áfram Akureyri! |