Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sveinbjörn varði 617 skot tímabilið 2010-2011

18. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Þegar Bubbi varði tvisvar með höfðinu gegn FH

Akureyri tekur á móti FH á morgun í KA-Heimilinu klukkan 19:00. Af því tilefni ætlum við að rifja upp skemmtileg tilþrif úr fyrri viðureign liðanna.

Markvörðurinn knái hann Sveinbjörn Pétursson fór á kostum í þriðja leik Akureyrar og FH í úrslitum Íslandsmótsins árið 2011 þegar Akureyri sigraði 23-22. Sveinbjörn varði 21 skot (51% varsla) og þar af tvö með höfðinu. Kappinn er hinsvegar ákaflega harður af sér og lét það ekki á sig fá og kláraði leikinn af krafti og lék lykilhlutverk í sigrinum góða.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson