
Akureyri mćtir í Garđabćinn á mánudaginn og mćtir ţar liđi Stjörnunnar í 16-liđa úrslitum Coca-Cola bikarsins. Stjarnan er í fyrsta sćti 1. deildar og má reikna međ hörkuleik enda sćti í 8-liđa úrslitunum í húfi.
Síđast ţegar liđin mćttust í bikarnum unnu Stjörnumenn óvćntan sigur en ţađ var í undanúrslitum keppninnar áriđ 2013. Stjarnan lék eins og núna í 1. deildinni og međ öguđum leik tókst ţeim ađ landa 24-26 sigri og tryggja sér sćti í úrslitaleiknum. Nú er bara ađ vona ađ ţetta endurtaki sig ekki á mánudaginn.Stjarnan féll úr efstu deild síđasta vor en er sem stendur í efsta sćti 1. deildar eftir tíu umferđir, töpuđu raunar fyrir Selfyssingum 32 - 24 en hafa unniđ hina níu leikina býsna örugglega.
Atkvćđamestu menn Stjörnunnar eru Starri Friđriksson og Andri Hjartar Grétarsson međ 50 skoruđ mörk hvor. En ţjálfari liđsins er Einar Jónsson, fyrrum ţjálfari Fram en er í dag ađstođarţjálfari íslenska kvennalandsliđsins.
Akureyri og Stjarnan mćttust ţrisvar á síđasta tímabili, Akureyri vann tvisvar á heimavelli en leiknum í Garđabć lauk međ jafntefli.

Heiđar Ţór og Andri Hjartar Grétarsson eigast hér viđ í fyrri heimaleiknum í fyrra
Ţađ leit raunar ekki vel út á tímabili í fyrri heimaleiknum, Stjarnan hafđi leitt allan leikinn og međal annars veriđ 6 mörkum yfir í síđari hálfleik. Frábćr endurkoma Akureyrar hinsvegar í lokin sneri leiknum viđ og á endanum vannst 31-27 sigur. Hér má sjá síđustu einu og hálfu mínútuna í leik Akureyrar og Stjörnunnar ţann 25. september 2014.Stjarnan hefur sem sé gert Akureyri lífiđ leitt og verđa ţeir leikir Akureyrarliđinu vonandi víti til varnađar, ţađ má búast viđ alvöru leik á mánudagskvöldiđ ţar sem verđur hart barist enda sćti í 8-liđa úrslitunum í bođi, áfram Akureyri!
