 Nú þegar eru yfir 50 myndbönd í safninu og munu fleiri bætast við á næstunni
| | 1. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarNý viðbót við síðuna: MyndbandasafnHeimasíðan okkar er í stöðugri vinnslu og bætum við nú við nýju horni með myndböndum. Hægt er að nálgast heilan haug af myndböndum af Akureyri Handboltafélagi og vonum við að þessi nýja viðbót mælist vel fyrir.
Hægt er að nálgast myndbandasafnið með því að smella á Myndbönd uppi til hægri á síðunni eða með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan. Myndbandasafnið Myndböndin eru öll í tímaröð og munum við bæta við bæði nýlegum og eldri myndböndum á næstunni. Það er því um að gera að kíkja reglulega til að sjá hvort eitthvað nýtt hafi bæst við.
Einnig höfum við tengt flest myndböndin við leiki og því hægt að lesa umfjöllun, tölfræði, beina lýsingu eða skoða myndasafn frá þeim leik sem myndbandið tengist. Endilega kíkið á nýju viðbótina! |