 Gróttumenn eru erfiðir heim að sækja
| | 11. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarÚtileikur gegn Gróttu á laugardaginn Akureyri mætir á Seltjarnarnesið og leikur gegn Gróttu í síðasta útileiknum fyrir jólafrí. Liðin eru jöfn að stigum og því eru stigin tvö gríðarlega mikilvæg í þessari jöfnu deild.
Byrjun Gróttumanna í deildinni var erfið en upp á síðkastið hafa þeir reynst mörgum liðum erfiðir og má segja að sigur þeirra hér á Akureyri í október hafi verið upphafið á viðsnúningi þeirra. Þeim leik lauk með sex marka sigri Gróttu og óhætt að segja að Akureyringar gráti þau töpuðu stig í dag.
En það verður ekki af Gróttu tekið að þeir eru með hörkulið. Heimavöllurinn hefur reynst þeim drjúgur, þeir unnu Fram í síðustu umferð, 28:24 sömuleiðis hafa þeir unnið Víkinga, Aftureldingu og ÍR í deildinni og FH í bikarnum. Þá gerðu þeir góða ferð til Vestmannaeyja og unnu ÍBV sannfærandi á útivelli 26:31. Allt þetta eftir sigurinn á Akureyri í október.
Akureyrarliðið hefur verið á býsna góðu róli undanfarið og það er því sannarlega verðugt verkefni fyrir Akureyri að mæta á Seltjarnarnesið á laugardaginn og kvitta fyrir tapið fyrr í vetur.
Því miður þá verður leikurinn ekki í útsendingu hjá RÚV en við hvetjum að sjálfsögðu alla sem eiga kost á til að mæta á Nesið á laugardaginn og styðja Akureyri til sigurs enda mikilvægt að sækja sem flest stig fyrir jóla og EM fríið.
Við verðum svo að sjálfsögðu með textalýsingu frá leiknum hér á heimasíðunni. |