Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hreiðar hefur verið góður í vetur

11. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hreiðar valinn í 28 manna hópinn fyrir EM

Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari valdi í dag 28 manna hóp sem kemur til greina fyrir Evrópumótið sem fer fram í Póllandi í janúar. Æfingahópur Íslands verður tilkynntur á næstu dögum, en endalegur 16 manna hópur fyrir EM verður valinn á rétt fyrir mót.

Æfingar A landsliðs karla hefjast 29. desember og spila strákarnir við Portúgal í Höllinni 6. og 7. janúar. Föstudaginn 8. janúar heldur liðið til Þýskalands þar sem lokaundirbúningur liðsins fer fram og verða m.a. spilaðir tveir leikir Þjóðverja.

Það verður gaman að sjá hvort Hreiðar verði valinn í æfingahópinn en í hópnum eru fleiri kunnugleg andlit eins og Guðmundur Hólmar Helgason sem í dag leikur með Val en er uppalinn með Akureyri eins og flestir ættu að þekkja. Einnig er Arnór Þór Gunnarsson í hópnum en hann lék með Þór fyrir sameiningu og svo eru svo Arnór Atlason og Guðjón Valur Sigurðsson í hópnum en þeir léku með KA fyrir sameininguna.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson