 Fjölmargar vörslur Bernharđs komu ekki í veg fyrir tap í dag
| | 13. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Tap gegn Fram eftir hörkuleikAkureyri-1 tók á móti sterku liđi Fram í lokaleik 2. flokks fyrir jólafrí. Strákarnir hafa veriđ óstöđugir í vetur en ţeir hafa sýnt góđan leik á köflum en dottiđ niđur ţess á milli.
Gestirnir byrjuđu leikinn mikiđ mun betur og ekki leiđ á löngu uns stađan var orđin 2-6 og Ingimundur tók leikhlé. Strákarnir komust betur og betur í takt viđ leikinn og náđu ađ jafna metin í 9-9. Framarar héldu áfram ađ leiđa leikinn en Akureyri var aldrei langt á eftir og var stađan 13-14 ţegar flautađ var til hálfleiks.
Áfram var leikurinn í járnum í upphafi síđari hálfleiks en ţegar 18 mínútur lifđu leiks komust strákarnir yfir í 18-17 og fengu tćkifćri til ađ tvöfalda forystuna en ţá hrökk allt í baklás. Gestirnir gengu á lagiđ og kláruđu leikinn međ öguđum leik en ţeir refsuđu vel fyrir öll mistök okkar manna og skoruđu ófá mörk úr hröđum sóknum.
Lokatölur voru 24-30 en strákarnir geta sjálfum sér um kennt ađ hafa ekki fengiđ neitt útúr leiknum. Bernharđ Jónsson átti mjög góđan leik í markinu og var mikilvćgur ţáttur í ţví ađ strákarnir komu sér aftur inn í leikinn eftir erfiđa byrjun.
Arnţór Finnsson var öflugur á línunni og skorađi 8 mörk, Hafţór Vignisson, Heimir Pálsson og Vignir Jóhannsson Rist skoruđu allir 4 mörk á međan Patrekur Stefánsson skorađi 2 og ţeir Sigţór Jónsson og Dađi Jónsson skoruđu 1 mark hver.
Nú tekur viđ smá pása hjá liđinu og vonandi ađ menn lćri af leiknum í dag og nái ađ fínpússa spiliđ betur, ef menn ná ađ fćkka mistökunum ţá getur liđiđ fariđ ansi langt í vetur. |