 Leikir Akureyrar og ÍBV eru hörkuleikir
| | 14. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarLokaleikurinn fyrir jólafrí á fimmtudaginnAkureyri tekur á móti ÍBV í síðasta leiknum fyrir jóla og EM frí. Akureyrarliðið hefur verið á mikilli siglingu eftir erfiða byrjun og mun með sigri á fimmtudaginn tryggja sér sæti í efri hluta deildarinnar þegar aðeins lokaumferðin er eftir. Það sem enn mikilvægara er, sæti í efri hlutanum fyrir tryggir 5 heimaleiki í stað 4 í lokaumferðinni. Það er því gríðarlega mikið undir í þessum síðasta leik í bili.
Það sem meira er, þá á liðið meira að segja enn möguleika á að enda í 4. sæti fyrir jól en það gæfi sæti í Deildarbikarnum og það er eitthvað sem enginn spekingur sá fyrir þegar liðið var á botninum eftir 5 leiki.
Gott fólk, nú þurfum við að fylla KA-Heimilið og fá upp alvöru stemningu. Strákarnir hafa sýnt magnaðan karakter að snúa genginu við og koma sér í þá stöðu sem liðið er í dag. Við sjáumst í svakalegri stemningu á fimmtudaginn, áfram Akureyri!
|