Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hreiðar á 146 landsleiki fyrir Ísland

21. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hreiðar Levý í EM æfingarhópnum

Fyrir skömmu sögðum við frá því að markvörðurinn okkar hann Hreiðar Levý Guðmundsson hafi verið valinn í 28 manna EM hópinn. Nú hefur sá hópur verið skorinn niður í 21 og mun hefja æfingar þann 29. desember. Hreiðar er enn í hópnum og verður gaman að fylgjast með hvort honum takist ætlunarverk sitt að komast á EM.

Þá er Guðmundur Hólmar Helgason einnig í hópnum en hann stóð sig frábærlega með landsliðinu á Gullmótinu í Noregi fyrir skömmu. Virkilega ánægjulegt að sjá Gumma koma svona sterkan inn og vonandi nær hann að koma sér á sitt fyrsta stórmót.

Að vanda eigum við Akureyringar fleiri í hópnum en Arnór Þór Gunnarsson er í hópnum en hann lék með Þór fyrir sameiningu og svo eru svo Arnór Atlason og Guðjón Valur Sigurðsson í hópnum en þeir léku með KA fyrir sameininguna.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson