Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það verður nóg að gera hjá Arnþóri um helgina

15. janúar 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Fjórir útileikir um helgina

Það er óhætt að segja að það sé annasöm helgi framundan hjá strákunum í 2. flokki hjá Akureyri. Bæði liðin halda suður og spila hvort um sig tvo leiki. Í 1. deildinni leikur Akureyri 1 gegn Haukum klukkan 14:40 á laugardaginn og er sá leikur í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Á sunnudaginn leikur Akureyri 1 síðan við Fram og hefst sá leikur klukkan 12:30 í Framhúsinu.

Í 2. deildinni byrjar Akureyri 2 á því að spila við Þrótt og hefst sá leikur klukkan 16:30 á laugardaginn og verður leikið í Laugardalshöllinni. Á sunnudaginn mætir Akureyri 2 síðan HK og hefst sá leikur klukkan 11:00 í Digranesinu.


Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson