Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Tveir leikdagar breytast

28. janúar 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Breyting á leikdögum Akureyrar í Olís deildinni

Samkvæmt upplýsingum á vef HSÍ um mótamál hafa tveir leikir Akureyrar í Olís deild karla verið færðir til. Þannig hefur upphafsleikurinn eftir EM pásuna verið færður fram um einn dag og verður klukkan 19:00 miðvikudaginn 3. febrúar í stað fimmtudagsins 4. febrúar.

Sömuleiðis hefur heimaleikur Akureyrar gegn Vestmannaeyingum verið færður af mánudeginum 14. mars yfir á sunnudaginn 13. mars klukkan 16:00.

Annars er það að frétta af liðinu að um síðustu helgi fór liðið suður og spilaði tvo æfingaleiki. Góður sigur vannst á Fram. Seinni leikurinn var gegn Haukum. Akureyri leiddi í hálfleik en Haukar sigu framúr undir lokin og fóru með sigur af hólmi.
Þriðji leikurinn var fyrirhugaður gegn Stjörnunni í Garðabænum en hætt var við leikinn þar sem álagið á þunnskipaðan hóp Akureyrar var býsna mikið. Annars voru menn sáttir með ferðina og hlakkar til að hefja alvöruna á ný.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson