Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Róleg helgi hjá Akureyri

5. febrúar 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Leikjum laugardagsins frestað

Fyrirhugaðir voru heimaleikir hjá báðum liðum 2. flokks á laugardaginn, þar sem Valur átti að koma norður. Valsmenn óskuðu hins vegar eftir frestun á leikjunum þar sem meistaraflokkur þeirra á leik í bikarnum um helgina.

Samkvæmt vef HSÍ er búið að setja leikina á sunnudaginn 21. febrúar næstkomandi. Ef ekkert óvænt kemur uppá þá er næsti leikur hjá 2. flokki laugardaginn 13. febrúar en þá tekur Akureyri 2 á móti ÍR. Nánar um það síðar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson