Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Benni mun væntanlega verða á vaktinni um helgina

19. febrúar 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Þrír heimaleikir um helgina

Það er óhætt að segja að það sé nóg um að vera hjá strákunum í 2. flokki Akureyrar um helgina. Á laugardaginn tekur Akureyri-2 á móti Víkingum en sá leikur er liður í 2. deildarkeppninni. Viðureign liðanna hefst klukkan 16:30 og er í Íþróttahöllinni.

Á sunnudaginn eru leikir bæði í 1. og 2. deild og fara þeir fram í KA-Heimilinu. Akureyri-1 mætir Val-1 og hefst sá leikur klukkan 13:00. Akureyri-2 tekur sömuleiðis á móti Valsmönnum (Valur-2) í 2. deildinni og hefst þeirra leikur klukkan 15:00.

Valsmenn eru greinilega með sterk lið, Valur-1 trónir á toppi 1. deildarinnar og Valur-2 er í öðru sæti 2. deildarinnar. Akureyrarliðin þurfa því á góðum stuðningi að halda í þessum leikjum og rétt að minna á að vanda er frítt á leikina.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson