 Tekst Gulla að leggja sitt gamla lið?

| | 31. mars 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Barist við Fram um 7. sætiðAkureyri leikur í dag, fimmtudag, lokaleik sinn í Olís-deild karla þegar liðið sækir Framara heim klukkan 19:30. Liðið sem fer með sigur af hólmi tryggir sér 7. sætið í deildinni og mun mæta Val í úrslitakeppninni. Liðið sem tapar hinsvegar endar í 8. sætinu og mun mæta nýkrýndum Deildarmeisturum Hauka.
Eins og kom fram á síðunni hjá okkur í gær vann Akureyri fyrri leik liðanna fyrir norðan 31:24 en leiknum í Safamýrinni lauk með jafntefli 26:26 og sjá má myndbrot úr honum hér að neðan.Við verðum að sjálfsögðu með beina textalýsingu frá leiknum fyrir þá sem ekki komast í Safamýrina en við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta á leikinn og styðja strákana í þessum mikilvæga leik, áfram Akureyri!
Guðlaugur Arnarsson þjálfar Fram en hann lék eins og flestum ætti að vera kunnugt með Akureyri og varð Deildarmeistari með liðinu árið 2011. Hér má sjá myndband þar sem hann skorar tvö lagleg mörk einmitt gegn Fram hér um árið. |