 Valdi fór oft á flug eftir mörkin sín
| | 13. apríl 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarÞegar afi tók flugvélina gegn HaukumHaukar taka á móti Akureyri í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins á morgun klukkan 19:30 eins og flestir væntanlega vita. Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta á Ásvelli og styðja Akureyrarliðið til sigurs!
Í tilefni af leiknum rifjum við hér skemmtilega takta hjá Þorvaldi Þorvaldssyni í sigurleik á Haukum á Ásvöllum þann 24. mars árið 2007. Fyrra markið er mjög einkennandi fyrir kappann en þar rikkir hann á línunni og vippar svo yfir markvörðinn og að sjálfsögðu fagnar hann með því að taka flugvélina eins og honum einum er lagið.Þorvaldur er elsti leikmaður til að spila leik fyrir Akureyri en Valdi, oft nefndur afi, var 39 ára og 39 daga gamall þegar hann lék síðast fyrir Akureyri. Það var í leik gegn Aftureldingu þann 31. mars 2011. |