 Mosfellingar eru engin lömb að leika við
| | 21. september 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarHeimaleikur gegn Aftureldingu á fimmtudaginnÞað er stutt á milli leikja í Olís-deildinni þessa dagana og á morgun, fimmtudag er komið að heimaleik gegn Aftureldingu úr Mosfellsbænum. Enginn velkist í vafa um að þar verður hart tekist á, Akureyri búið að leika þrjá hörkuleiki án þess að ná stigi út úr þeim. Mosfellingar eru komnir með fjögur stig í hús, töpuðu illa fyrir Selfyssingum í fyrstu umferð en knúðu fram magnaðan eins marks sigur á Haukum í annarri umferð. Á mánudaginn lögðu þeir síðan Fram að velli.
Liðin mættust tvisvar hér fyrir norðan á síðasta tímabili. Akureyri vann góðan fimm marka sigur í fyrri leiknum og klæjar örugglega í fingurna að endurtaka leikinn á morgun, við getum allavega lofað hörkuleik í KA heimilinu á fimmtudaginn. Þrándur Gíslason í leik liðanna í fyrra, hann hefur nú lagt keppnisskóna á hilluna Akureyri-TV HSÍ sendir öllum liðum Olís-deildarinnar tilmæli um að sýna heimaleiki sína á netinu. Við brugðumst við og sýndum síðasta leik í beinni og stefnum á að það verði regla hjá okkur á tímabilinu. Nánari upplýsingar um útsendinguna verða hér á heimasíðunni á leikdegi.
Leikurinn hefst klukkan 19:00 í KA heimilinu en það er upplagt að mæta tímanlega á staðinn því fyrir leikinn verður hægt að ganga frá kaupum á ársmiðum (silfurkortum) og gullkortum fyrir tímabilið. Athugaðu að HSÍ breytti nýlega tímasetningu allra heimaleikja Akureyrar á fimmtudögum og munu þeir hér eftir hefjast klukkan 19:00 en ekki 19:30 eins og stendur á kortunum.Við vonumst til að sjá þig á leiknum á fimmtudaginn! Leikmenn og stjórn Akureyrar Handboltafélags. 
|