Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Strákarnir mæta í Grafarvoginn í kvöld

23. september 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Fjölnir - Akureyri U í beinni

Í kvöld heldur Ungmennalið Akureyrar í Gravarvoginn og mætir þar Fjölni í 1. deild karla. Þetta er leikur í annarri umferð 1.deildar en bæði lið unnu sína leiki í fyrstu umferðinni.

Fjölnir er tvímælalaust eitt af sigurstranglegri liðunum í deildinni en síðasta vor töpuðu þeir umspilseinvígi við Selfoss um sæti í Olís deildinni. Þjálfari Fjölnis er Arnar Gunnarsson, betur þekktur á Akureyri sem Addi Maze en hann á sér langa þjálfarahefð.

Leikurinn hefst klukkan 20:00 í kvöld og verður sýndur beint á Fjölnir TV.

Smelltu hér til að fylgjast með útsendingunni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson