 Selfyssingar eru erfiđir heim ađ sćkja
| | 1. október 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Útileikur á SelfossiAkureyrarliđiđ mćtir á Selfoss í dag í fimmta leikinn í Olís deildinni. Andstćđingarnir eru heimamenn sem unnu sig upp í Olís deildina í vor eftir hörkueinvígi gegn Fjölni. Ţjálfari Selfyssinga er norđanmađurinn Stefán Árnason en hann ţjálfađi liđiđ einnig síđasta tímabil.
Selfyssingar styrktu liđ sitt töluvert í sumar, endurheimtu skyttuna Einar Sverrisson sem hefur leikiđ međ ÍBV síđustu tvö tímabil. Ţá fengu ţeir línumanninn Guđna Ingvarsson sem kom frá Gróttu eftir ađ hafa veriđ í liđi ÍBV ţar áđur. Markvörđurinn Grétar Ari Guđjónsson kom frá Haukum ţannig ađ Selfoss liđiđ er býsna vel mannađ.
Selfyssingar byrjuđu deildina frábćrlega, unnu örugga sigra á Aftureldingu og Val í fyrstu umferđunum, töpuđu naumlega fyrir Haukum á heimavelli en máttu sćtta sig viđ óvćnt fjögurra marka tap gegn Fram í síđustu umferđ.
Ţetta er annar heimaleikur Selfoss á tímabilinu og viđ vćntum ţess ađ leikurinn verđi sýndur beint á Selfoss TV líkt og ţeir sýndu Haukaleikinn.
Hér er hćgt ađ fylgjast međ útsendingunni frá leiknum.
Viđ uppfćrum ţessa tengingu ţegar viđ vitum meira en leikurinn hefst klukkan 15:00 í dag.
|