Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sjáumst á leiknum á eftir!

5. október 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - Haukar í beinni

Það styttist í stórleik Akureyrar og Hauka sem hefst klukkan 19:00 í kvöld. Að sjálfsögðu er afar brýnt að allir sem vettlingi geta valdið komi á leikinn og hvetji sitt lið. Bæði lið munu klárlega leggja allt í sölurnar til að krækja í stigin tvö sem eru í boði enda stigin dýrmæt í deild þar sem öll liðin hafa verið að reyta stig hvert af öðru.

Við verðum með beina útsendingu hér á síðunni fyrir þá sem ekki eiga heimangengt og gerum ráð fyrir að útsendingin hefjist rétt fyrir klukkan 19:00.

Smelltu hér til að fylgjast með útsendingunni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson