Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Nóg að gera á suðurvígstöðvunum

14. október 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: HK - Akureyri Ungmennalið

Þessa helgina eru þrír útileikir á dagskrá hjá liðum Akureyrar. Ungmennaliðið sem leikur í 1. deild karla byrjar í kvöld, föstudag þegar strákarnir heimsækja HK í Digranesið í Kópavogi. Sá leikur hefst klukkan 20:00. Við höfum því miður ekki séð nein merki um að leikurinn verði sýndur beint en munum setja inn upplýsingar um það ef þær berast.
Að sjálfsögðu hvetjum við alla stuðningsmenn á höfuðborgarsvæðinu til að kíkja á leikinn og styðja strákana.

Ungmennaliðið heldur svo á Selfoss á morgun, laugardag þar sem strákaranir mæta Mílunni en samkvæmt nýjustu upplýsingum hefst sá leikur klukkan 11:30. Mílumenn og Selfyssingar hafa sýnt sína leiki á Selfoss-TV og eru búnir að gera ráðstafanir til að sýna leikinn á laugardaginn.

Smelltu hér til að fylgjast með útsendingunni, hún hefst rétt fyrir 11:30 á laugardaginn á Selfoss TV.

Meistaraflokkur Akureyrar á síðan útileik gegn Fram í Olís deild karla á laugardaginn klukkan 16:00.
Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem vettlingi geta valdið til að mæta í Framhúsið í Safamýrinni og styðja strákana til sigur í þeim leik enda mikið undir.
Því miður höfum við ekki fundið nein merki um að sá leikur verði sýndur á netinu en munum setja upplýsingar um það á heimasíðuna ef þær berast.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson