Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Bílmerkið og brjóstnælan

9. nóvember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Merki Akureyrar á bílrúðuna og brjóstnælur í sparifötin

Nú geta stuðningsmenn Akureyrarliðsins orðið sér úti um langþráð merki til að setja á bílrúðurnar hjá sér. Við fengum á dögunum fyrstu sendingu af merkjunum og verður hægt að kaupa þau í sjoppunni á leik Akureyrar og Stjörnunnar á fimmtudaginn.
Merkið kostar aðeins 500 krónur og hvetjum við stuðningsmenn til að bregða skjótt við og ná sér í merki því aðeins er takmarkaður fjöldi í boði.

Auk þess eru til örfá eintök af brjóstnælum með Akureyrarmerkinu og verða þau einnig til sölu í sjoppunni á meðan birgðir endast.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson