Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Mindaugas kominn á flott skrið

13. nóvember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Mindaugas valinn í úrvalslið 10. umferðar

Vefurinn fimmeinn.is velur úrvalslið hverrar umferðar Olís-deildar karla og birti í gær val sitt fyrir 10. umferðina. Þar átti Akureyri einn fulltrúa en Midaugas Dumcius var valinn besta hægri skyttan og er hann vel að því kominn.

Úrvalslið umferðarinnar er þannig að mati þeirra á fimmeinn.is:
Markmaður: Helgi Hlynsson, Selfoss
Vinstri horn: Andri Þór Helgason, Fram
Vinstri skytta: Josip Juric Gric, Val
Miðja: Elvar Örn Jónsson, Selfoss
Lína: Orri Freyr Gíslason, Val
Hægri skytta: Mindaugas Dumcius, Akureyri
Hægri horn: Finnur Ingi Stefánsson, Grótta


Mindaugas skoraði beint úr aukakasti í lok fyrri hálfleiks og hér fagnar hann með Kristjáni Orra Jóhannssyni.

Akureyrarliðið hefur ekki átt marga fulltrúa í vali fimmeins það sem af er tímabilsins en Mindaugas er sá þriðji það sem af er.
Í fimmtu umferð var Andri Snær Stefánsson valinn vinstri hornamaður umferðarinnar eftir að Akureyri lagði Selfoss á útivelli
Í þriðju umferð var Karolis Stropus valinn besta vinstri skyttan eftir leik Akureyrar gegn ÍBV í Eyjum.

Við óskum þeim öllum til hamingju með útnefningarnar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson