Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Kristján Orri er heldur betur kominn á flug, Tomas og Igor međ flottan leik





20. nóvember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Háspennujafntefli Akureyrar og ÍBV

Ţađ var gríđarleg spenna og stemmingin eftir ţví í KA heimilinu í dag ţegar Akureyri og ÍBV mćttust í Olís deild karla. Gestirnir byrjuđu betur í leiknum og náđu fjögurra marka forskoti 2-6 á fyrstu tíu mínútunum. Sóknarleikur heimamanna gekk brösuglega og mönnum mislagđar hendur viđ ađ koma boltanum á milli sín.

En hćgt og bítandi tókst ađ vinna upp forskot Eyjamanna og eftir rúmar 25 mínútur jafnađi Kristján Orri leikinn í 11-11 ţegar hann skorađi ţrjú mörk í röđ. Eyjamenn náđu forystunni aftur og leiddu 12-13 í hálfleik.

Kristján Orri og Karolis Stropus fóru fyrir sóknarleiknum í fyrri hálfleik en ţeir tveir skoruđu tíu af tólf mörkum liđsins, Kristján Orri 6 og Stropus 4.


Karolis Stropus međ flott mark, eitt af fimm í leiknum

Seinni hálfleikurinn var síđan samfellt taugastríđ, Kristján Orri hélt áfram ţar sem frá var horfiđ og međ ţrem mörkum kom hann Akureyri yfir í 15-14. Ţar međ var Akureyri komiđ međ frumkvćđiđ í leiknum án ţess ţó ađ ná ađ hrista ÍBV af sér.

Úkraínski hornamađurinn Igor Kopyshynskyi leysti Andra Snć af í horninu en raunar var tvísýnt um ađ Andri gćti yfirleitt tekiđ ţátt í leiknum. Igor kom ţarna inn á í sínum fyrsta leik og sýndi ađ hann er frábćr leikmađur, ţrjú stórgóđ mörk úr horninu.

Akureyri náđi tveggja marka forskoti, 22-20 og aftur 23-21 en ÍBV náđi í bćđi skiptin ađ jafna leikinn. Lokaspretturinn tók á taugarnar, Igor skorađi 24. mark Akureyrar en Sigurbergur Sveinsson jafnađi. Karolis Stropus reyndi ađ gera út um leikinn međ hörkuskoti sem ţví miđur hafnađi í ţverslánni ţannig ađ ÍBV fékk boltann ţegar 8 sekúndur voru eftir. ÍBV geystist í sókn og ţeirra langbesti mađur, Theodór Sigurbjörnsson kom skoti í markiđ en Tomas Olason innsiglađi frábćran leik sinn međ ţví ađ verja skotiđ og jafntefli ţví niđurstađan.


Tomas Olason međ glćsivörslu frá Theodóri í hrađaupphlaupi

Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 13 (3 úr vítum), Karolis Stropus 5, Igor Kopyshynskyi 3, Arnór Ţorri Ţorsteinsson 1, Garđar Már Jónsson 1 og Mindaugas Dumcius 1.
Í markinu átti Tomas Olason enn einn stórleikinn, varđi 22 skot ţar af 1 vítakast. Arnar Ţór Fylkisson reyndi viđ eitt vítakast en gekk ekki ađ ţessu sinni.

Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson 12 (7 úr vítum), Sigurbergur Sveinsson 4, Ágúst Emil Grétarsson 2, Dagur Arnarsson 2, Elliđi Snćr Viđarsson 1, Grétar Ţór Eyţórsson 1, Kári Kristján Kristjánsson og Magnús Stefánsson 1.
Í markinu stóđ Kolbeinn Aron Ingibjargarson og varđi 14 skot, Andri Ísak Sigfússon kom inná og varđi vítakast.

Kristján Orri Jóhannsson átti hreinlega stórleik, skorađi 13 mörk úr 14 skotum. Skotiđ sem klikkađi var vítakast en hann náđi sjálfur frákastinu og skorađi í kjölfariđ.


Eitt af ţrettán mörkum Kristjáns Orra í uppsiglingu

Tomas Olason var sömuleiđis međ frábćran leik í dag og varđi mikiđ af dauđafćrum Eyjamanna. Karolis Stropus var frábćr í fyrri hálfleiknum og hornamađurinn Igor sýndi ađ hann kann sitthvađ fyrir sér.

Hjá Eyjamönnum var Theodór Sigurbjörnsson allt í öllu, stal ótal boltum í vörninni sem skiluđu ódýrum hrađaupphlaupsmörkum.

Leikurinn var í beinni útsendingu á Akureyri TV, smelltu hér til ađ horfa á útsendinguna.

Nćsti leikur Akureyrar er sunnudaginn 27. nóvember ţegar liđiđ sćkir toppliđ Aftureldingar heim.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson