Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það er hægt að lofa fjöri þegar þessi lið mætast

5. desember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Bikarslagur gegn FH

Akureyri tekur á móti FH í 16-liða úrslitum Coca Cola bikar karla klukkan 19:00 í kvöld. Það þarf ekki að segja margt um hvað er undir í bikarleikjum, leikið er til þrautar og liðið sem tapar er einfaldlega úr leik.

Liðin mættust í KA heimilinu 27. október og úr varð einn af háspennuleikjum tímabilsins sem endaði með jafntefli, 24-24. Sá leikur varð vendipunktur á gengi Akureyrarliðsins sem hefur ekki tapað leik síðan.

Í fyrrgreindum leik voru þeir Óðinn Þór Ríkharðsson og Einar Rafn Eiðsson atkvæðamestir FH-inga með 8 og 6 mörk auk þess sem markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson átti magnaðan leik. Það er reyndar í takt við sögu FH liðsins í deildarkeppninni en þar eru þeir félagar langmarkahæstir, Óðinn Þór með 92 mörk og Einar Rafn með 88.

Bæði Akureyri og FH sátu hjá í 32 liða úrslitunum þannig að þetta er fyrsti leikur liðanna í bikarkeppninni að þessu sinni og næsta víst að hvorugt liðið hefur áhuga á að detta út í kvöld. Það kæmi því ekki á óvart að það yrði spennuþrungið loftið í KA heimilinu, það hefur verið einkennismerki Akureyrarliðsins að bjóða upp á rafmagnaða spennu allt til enda.
Við hvetjum alla stuðningsmenn til að fjölmenna á leikinn og verða þátttakendur í fjörinu. Það er rétt að ítreka að Gullkortin 2016-2017 gilda á leikinn.

Fyrir þá sem ekki komast á leikinn verðum við með beina útsendingu á Akureyri TV – SMELLTU HÉR TIL AÐ OPNA ÚTSENDINGUNA.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson