Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sigþór Gunnar Jónsson var markahæstur Akureyringa í dag

9. desember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri U með þriggja marka sigur á Val U

Ungmennalið Akureyrar vann í kvöld góðan útisigur á Ungmennaliði Vals í 1. deild karla. Heimamenn í Val voru einu marki yfir í hálfleik 13-12 en Akureyrarliðið kom sterkt til baka í seinni hálfleiknum og unnu magnaðan þriggja marka sigur 22-25.

Við höfum reyndar ekki miklar upplýsingar ennþá um gang leiksins en þetta var virkilega magnaður sigur hjá strákunum, ekki síst í ljósi þess að það voru fyrst og fremst yngri strákarnir sem mönnuðu liðið í dag.

Mörk Akureyrar U: Sigþór Gunnar Jónsson 7, Heimir Pálsson 5, Jóhann Einarsson 5, Dagur Gautason 3, Hafþór Már Vignisson 3, Aron Tjörvi Gunnlaugsson 2, Elvar Reykjalín Helgason 1 og Kristján Helgi Garðarsson 1.
Í markinu stóðu Ásgeir Kristjánsson og Björgvin Helgi Hannesson.

Mörk Vals U: Markús Björnsson 7, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 6, Ásgeir Snær Vignisson 3, Sigurvin Jarl Ármannsson 2, Sturla Magnússon 2, Alexander Jón Másson 1 og Tjörvi Týr Gíslason 1.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson