Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Sigţór Árni er kominn af stađ eftir töluvert hlé

11. desember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Tap gegn Haukum í Schenkerhöllinni

Eftir ţokkalega góđan fyrri hálfleik var stađan 12-10 fyrir Hauka sem höfđu komist í 4-1 og 4-9. Akureyrliđiđ beit hinsvegar frá sér í seinni hluta hálfleiksins og náđi sem áđur segir ađ minnka muninn niđur í tvö mörk í hálfleik og liđiđ virtist vera ađ ná sér á strik.

Upphaf seinni hálfleiks var hins vegar ţveröfugt Haukar tóku öll völd á vellinum og munurinn varđ skyndilega átta mörk, 19-11. Nćstu fjögur mörk voru Akureyringa sem minnkuđu muninn í fjögur mörk en Haukar létu ţađ ekki slá sig út af laginu og svöruđu međ fimm mörkum í röđ.
Lokatölur 29-19 og óhćtt ađ segja ađ Akureyrarliđiđ átti ekki neina möguleika í seinni hálfleiknum. Jákvćtt viđ leikinn var ađ Sigţór Árni Heimisson kom inn í hópinn á ný, byrjađi reyndar á bekknum en sýndi gamalkunna spretti.

Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 6 (1 úr víti), Mindaugas Dumcius 4, Andri Snćr Stefánsson ,2 (1 úr víti), Igor Kopyshynskyi 2, Arnór Ţorri Ţorsteinsson 1, Friđrik Svavarsson 1, Garđar Már Jónsson 1, Patrekur Stefánsson 1 og Sigţór Árni Heimisson 1.
Markverđirnir áttu erfitt uppdráttar, Tomas stóđ lengst af á milli stanganna og varđi 6 skot en Arnar Ţór Fylkisson stóđ vaktina lengst af í seinni hálfleik og varđi 1 skot.

Mörk Hauka: Adam Haukur Baumruk 9, Daníel Ţór Ingason 5, Brynjólfur Snćr Brynjólfsson 4 (1 úr víti), Heimir Óli Heimisson 3, Janus Dađi Smárason 3, Einar Pétur Pétursson 2, Giedrius Morkunas 1, Guđmundur Árni Ólafsson 1 (úr víti) og Ţórđur Rafn Guđmundsson 1.
Giedrius Morkunas reyndist erfiđur í marki Hauka og varđi 18 skot og Grétar Ari Guđjónsson tók tvö skot undir lok leiksins.

Ţessi leikur er búinn og ţýđir ekki ađ hugsa um hann nú er bara ađ undirbúa lokaleik ársins en laugardaginn 17. desember er heimaleikur gegn Fram og er óhćtt ađ segja ađ ţar ţurfa menn ađ mćta af fullum krafti.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson