Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Háspennuleikur á sunnudaginn

5. febrúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: FH - Akureyri - í beinni á SportTV

Það er stutt í næsta verkefni hjá Akureyri í Olísdeild karla nú fer að hefjast leikur FH og akureyrar í Kaplakrika. Þetta er upphafsleikur 18. umferðar deildarinnar og óhætt að segja að leikurinn er mikilvægur báðum liðum.

Bæði lið ætla sér klárlega að fylgja eftir góðum sigrum úr síðustu umferð, FH vann stórsigur á Fram, 28-38 og sitja í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig. Akureyri vann sem kunnugt er sigur á Val 27-21 og er í fjögurra liða pakka frá 7.-10. sæti með 13 stig.

Ekki þarf að efast um að fjölmargir stuðningsmenn Akureyrar á höfuðborgarsvæðinu ætla að styðja við bakið á sínum mönnum en leikurinn hefst núna klukkan 16:00 í Kaplakrika.
SportTV.is sýnir leikinn og hvetjum við þá sem ekki komast á leikinn til að fylgjast með útsendingunni. Smelltu hér til að horfa á útsendinguna.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson