 Arnór Þorri og Sigþór Gunnar báðir með átta mörk í dag

| | 11. febrúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri U: Hörkuleikur og jafntefli gegn HKÞað var háspennuleikur í Íþróttahöllinni í dag þegar Akureyri U tók á móti HK í 1. deild karla. Bæði lið með svipaða liðskipan og þegar þau mættust í bikarleik 2. flokks í gær. Þó komu nokkrir eldri reynsluboltar inn í bæði lið og settu mark sitt á leikinn.
HK fór betur af stað og var komið með fjögurra marka forskot 2-6 eftir rúmlega fimm mínútna leik. Akureyrarliðið gafst ekki upp og minnkaði muninn í eitt mark 7-8 og komst í kjölfarið yfir í stöðunni 11-10. Allt var í járnum í kjölfarið en HK leiddi 14-16 í hálfleik með því að skora síðustu þrjú mörkin.
Fjörið hélt áfram í seinni hálfleiknum en með frábærum kafla náði Akureyrarliðið þriggja marka forskoti 22-19 og bættu raunar um betur og staðan orðin 24-20 eftir þrettán mínútna leik. Arnar Þór Fylkisson stóð fyrir sínu um helgina
HK lagði þó ekki árar í bát og minnkaði muninn í eitt mark. Akureyri hélt frumkvæðinu og virtist ætla að tryggja sér bæði stigin úr leiknum en heppnin var með HK sem náði að jafna í 31-31 um leið og leiktíminn rann út. Engu að síður sterkt hjá Ungmennaliðinu að taka stig af HK sem er í toppbaráttunni.
Arnþór Þorri Þorsteinsson og Sigþór Gunnar Jónsson fóru fyrir Akureyrarliðinu í markaskorun með átta mörk hvor. Þá var Elvar Reykjalín traustur í vinstra horninu og Arnþór Gylfi Finnsson og Garðar Jónsson skiluðu sínu vel á lokamínútunum.
Hjá HK var það fyrst og fremst skyttan Svavar Kári Grétarsson sem sá til að HK færi ekki tómhent suður eftir helgina en Svavar var algjör yfirburðamaður í liðinu með tólf mörk.
Mörk Akureyri U: Arnór Þorri Þorsteinsson 8, Sigþór Gunnar Jónsson 8, Arnþór Gylfi Finnsson 5, Elvar Reykjalín 4, Garðar Már Jónsson 4, Aron Tjörvi Gunnlaugsson 1 og Heimir Pálsson 1 mark úr víti. Arnar Þór Fylkisson var með fína takta í markinu en hann varði fjórtán skot. Það var ánægjulegt að markvörðurinn Bernharð Anton Jónsson var á skýrslu í dag í fyrsta sinn eftir að hafa hlotið alvarleg augnmeiðsli í upphafi tímabilsins.
Mörk HK: Svavar Kári Grétarsson 12, Kristófer Dagur Sigurðsson 4, Arnþór Ingi Ingvason 3, Bjarki Finnbogason 3, Egill Björgvinsson 3, Kristján Ottó Hjálmsson 3, Jósef Samir Ómarsson 2 og Elías Björgvin Sigurðsson 1 mark.
Næsti leikur Ungmennaliðsins er heimaleikur gegn Mílunni laugardaginn 18. febrúar. |