Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Stórviðburður í Íþróttahöllinni

24. febrúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Tímamótaúrslitaleikur KA - Þór á sunnudaginn

Það er ekki á hverjum degi sem Akureyrarliðin KA og Þór mætast í úrslitaleik á landsvísu. Það er einmitt að gerast næstkomandi sunnudag þegar liðin mætast í bikarúrslitaleik yngra árs í 4. flokki karla. Að öllu jöfnu fara allir bikarúrslitaleikir yngri flokka fram í Laugardalshöllinni þennan dag en í ljósi þessa sögulegu tíðinda ákvað HSÍ að leikurinn færi fram hér fyrir norðan en eftir því sem best er vitað er þetta í fyrsta sinn sem bikarúrslitaleikur í handknattleik fer fram hér á Akureyri.

Leikurinn hefst klukkan 14:00 og fer fram í Íþróttahöllinni en húsið verður opnað klukkan 13:00. Við ætlum að skapa hátíðarstemmingu og hvetjum alla til að fjölmenna í Höllina og taka þátt í gleðinni enda frítt inn á leikinn.
Leikmenn meistaraflokks Akureyrar Handboltafélags verða með kaffiveitingar í hálfleik og um að gera að hitta strákana og spá í spilin. Þá verður leikurinn sýndur beint á Akureyri TV þannig að enginn ætti að missa af þessum tímamótaviðburði.

Sjáumst í Íþróttahöllinni á sunnudaginn!

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson