Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Frá stjórn Akureyri Handboltafélags

7. mars 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Yfirlýsing frá stjórn Akureyri Handboltafélags

Eftirfarandi yfirlýsing var send til skrifstofu HSÍ rétt fyrir hádegi í dag:

Stjórn Akureyrar handboltafélags harmar ákvörđun dómara og eftirlitsmanns vegna atviks sem átti sér stađ á síđustu sekúndum í jöfnum leik FH og Akureyrar laugardaginn 4. mars s.l.

Í fyrsta lagi gerđist leikmađur FH augljóslega sekur um brot, sem hefđi átt ađ dćma rautt spjald og víti fyrir, samkvćmt reglum HSÍ.
Brotiđ fólst í ţví ađ setja ekki boltann beint niđur ţegar búiđ var ađ flauta til marks um ađ boltinn hafi veriđ dćmdur af sóknarliđinu. Hér er um ađ rćđa skýrar reglur sem dómarar og eftirlitsmenn eiga ađ hafa á hreinu og voru ţessar reglur settar til ađ koma í veg fyrir svona brot á síđustu sekúndunum leiks, svo ađ liđiđ sem brýtur hagnist ekki. Í svona tilvikum á tafarlaust ađ dćma víti og rautt spjald1). Dómararnir stöđvuđu leikinn og höfđu nćgan tíma til ađ taka yfirvegađa ákvörđun en virđast ákveđa ađ hunsa reglurnar ađ tilmćlum eftirlitsmanns og hugsanlega rćna okkur stigi.

Í öđru lagi ákvađ eftirlitsmađur ađ ţjálfari Akureyrar hafi veriđ búinn ađ óska eftir leikhléi áđur en brotiđ átti sér stađ og ţví hafi ekki átt ađ dćma á brotiđ og leikhlé látiđ standa. Hins vegar er ljóst ađ ţá áttu ađ minnsta kosti ađ vera eftir 4 sekúndur af leiktíma, ekki 1 sekúnda eins og látiđ var standa. Ţetta sést allt greinilega á upptöku frá leiknum2).

Stjórn Akureyrar Handboltafélags harmar svona vinnubrögđ ekki síst í ljósi ţess ađ deildin er mjög jöfn og 1 stig getur skipt öllu máli í lok tímabils, bćđi á toppi og botni deildarinnar. Of mörg dćmi eru um slćm dómaramistök í Olís-deildinni í vetur og leitt ţegar svona mistök geta haft afdrifaríkar afleiđingar. Allir gera sér ţó grein fyrir ţví ađ öll erum viđ mannleg og gerum mistök en ţá er mikilvćgt ađ viđurkenna mistökin, lćra af ţeim og reyna ađ koma í veg fyrir ađ ţau gerist aftur.

Starf eftirlitsmanns á ađ vera skýrt samkvćmt 18.gr. reglugerđar HSÍ um mótamál:

„Sjái eftirlitsmađur eitthvađ athugavert viđ framkvćmd leiks skal hann skila ţar til gerđri skýrslu um ţađ til mótanefndar. Eftirlitsmađur skal skila inn skýrslu til dómaranefndar sem sýnir mat hans á störfum dómara í leiknum en hann hefur ekki lögsögu međ ţví sem dómarar ákveđa og byggt er á mati ţeirra á stöđunni í leiknum.“

Í ţessu tilviki voru dómarar og eftirlitsmađur ósammála og eftirlitsmađurinn réđi dómnum. Ţađ hefur alltaf veriđ okkar skilningur ađ dómarar taki ákvarđanir og dćmi ţađ sem gerist í leiknum.

Virđingarfyllst,
Stjórn Akureyrar Handboltafélags

1) Sjá 4. liđ í tilkynningu frá HSÍ frá 2. júní 2016 um sérreglur sem nú gilda um síđustu 30. sekúndur leiks (í stađ síđustu mínútu) http://hsi.is/frettir/frett/2016/06/02/Domaramal-Breyting-a-leikreglum/

2) Upptaka frá leiknum: https://www.youtube.com/watch?v=bewoB7FJaOk








Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson