 Það er aldrei lognmolla í kringum leikina gegn Val
| | 11. mars 2017 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Risaleikur gegn ValÞað er óhætt að segja að Akureyri eigi risaheimaleik í Olís deild karla í dag þegar nýkrýndir bikarmeistarar Vals mæta til leiks. Akureyri þarf nauðsynlega á stigunum að halda í harðri baráttu á botni deildarinnar og næsta víst er að Valsmenn munu ekkert gefa eftir en þeir eru að berjast um að enda í einu af fjórum efstu sætum deildarinnar.
Akureyri tapaði með einu marki í vægast sagt dramatískum útileik gegn FH í síðustu umferð en vann góðan sigur á Aftureldingu nokkrum dögum áður. Valur tapaði tveim síðustu leikjum sínum í Olís deildinni, báðum á heimavelli, síðast gegn Stjörnunni og þar áður fyrir FH.
Akureyri og Valur mættust í KA heimilinu þann 2. febrúar og var sá leikur fjörugur. Akureyri leiddi með einu marki í hálfleik, 13-12 en vann að lokum sannfærandi sigur 27-21. Ekki er að efa að heimamenn hafa hug á að endurtaka þann leik og er óskað eftir öflugum stuðningi áhorfenda í þeirri baráttu.Leikurinn verður í beinni útsendingu á Akureyri-TV, SMELLTU HÉR TIL AÐ FYLGJAST MEÐ ÚTSENDINGUNNI. 
|