Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það er allt undir í þessum leik

31. mars 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Frí hópferð á Stjörnuleikinn á þriðjudaginn

Ákveðið hefur verið að bjóða stuðningsmönnum Akureyrar upp á fría hópferð á leikinn mikilvæga gegn Stjörnunni á þriðjudaginn. Það verður frítt í rútuna og sömuleiðis fá ferðalangarnir frítt inn á leikinn sjálfan.
Lagt verður af stað frá Íþróttahöllinni á Akureyri stundvíslega klukkan 14:00 á þriðjudaginn og síðan haldið norður strax eftir leik.
Það er mikilvægt fyrir okkur að vita um þátttöku upp á að áætla hve stóra rútu þarf að panta. Því er óskað eftir að áhugasamir skrái sig með því að fylla út formið hér að neðan.

Nú liggur fyrir að ferðin verður farin, en áhugasamir eru samt beðnir um að skrá sig hér að neðan fyrir klukkan 10:00 á þriðjudagsmorgun svo að hægt sé að panta hæfilega stóra rútu.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson