Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Akureyri tók við bikarnum eftir tap á heimavelli - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Valgeir Ómarsson og Jón Karl Björnsson. Eftirlitsdómari Kristján Halldórsson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Hvernig sem fer þá mun Heimir lyfta bikarnum í kvöld
31. mars 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri - Afturelding og bikarafhending
Það er enginn venjulegur leikur sem verður í Höllinni í kvöld þegar Akureyri og Afturelding mætast. Afturelding berst fyrir lífi sínu í deildinni en Akureyri getur þannig séð komið afslappað til leiks, deildarmeistaratitillinn i höfn og liðið fær bikarinn afhentan í leikslok. Það verður þó ekkert gefið eftir af hálfu Akureyrar eins og kemur fram hjá fyrirliðanum:
„Við ætlum okkur að taka við bikarnum eftir sigurleik og það verður ekki leiðinlegt að gera það fyrir framan fulla höll af okkar áhorfendum sem hafa stutt vel við bakið á okkur í vetur. Okkar stuðningsmenn eiga þetta jafn mikið eða ekki meira skilið en við,” segir Heimir Örn Árnason fyrirliði Akureyrar í viðtali við Vikudag.
Við munum að sjálfsögðu verða með beina textalýsingu frá leiknum fyrir þá sem ekki komast á leikinn. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og lýsingin rétt áður.
Það er mikill spenningur hjá leikmönnum Akureyrar fyrir kvöld enda af nógu að taka. Hörkuleikur í vændum gegn Aftureldingu og því næst taka leikmenn á móti bikarnum fyrir deildarmeistaratitilinn. En það er þó ekki allt heldur ætla leikmenn að herma loforð upp á þjálfarann, Atla Hilmarsson en hann hafði lofað að syngja fyrir leikmenn þegar titill væri í höfn.
Nú er fyrsti titillinn kominn í hús og ekkert að vanbúnaði fyrir Atla að grípa míkrófóninn. Væntanlega tekur Atli sitt þekktasta lag, Fiskinn hennar Stínu en það söng hann oft hér á árum áður er hann gerði KA að Íslandsmeisturum.
Á 80 ára afmælishátíð KA í janúar 2008 var Atli kallaður óundirbúinn upp á svið og tók Fiskinn með hljómsveit hússins og fórst það snilldarlega úr hendi eins og hans var von og vísa. Svo skemmtilega vill til að í hljómsveitinni eru tveir stjórnarmenn Akureyrar Handboltafélags, Stefán Jóhannsson gítarleikari og Hannes formaður Karlsson trommuleikari. Aðrir í hljómsveitinni eru bræður Stefáns, þeir Árni og Eiríkur Jóhannssynir sem leika á bassa og hljómborð.
Atli fór hreinlega á kostum
Hljómsveitin með Atla Hilmarsson í fararbroddi
Afturelding er að berjast fyrir tilveru sinni í deildinni
30. mars 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar
Heimaleikur og bikarafhending á fimmtudag
Það verður heldur betur fjör í Íþróttahöllinni á fimmtudaginn þegar Akureyri Handboltafélag tekur á móti Aftureldingu úr Mosfellsbæ í næstsíðustu umferð N1 deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 19:30 sem er nokkru síðar en vanalega tíðkast. Ástæðan er sú að í reglum HSÍ er kveðið á um að allir leikir í tveim síðustu umferðum deildarinnar skuli fara fram samtímis.
Í leikslok á fimmtudaginn verður síðan stór stund í sögu handboltans hér á Akureyri en þá verður liðinu afhentur bikarinn sem tilheyrir Deildarmeistaratitlinum. Við treystum því að hinir frábæru stuðningsmenn fjölmenni á leikinn og taki þátt í bikarafhendingunni enda eiga stuðningsmenn liðsins drjúgan þátt í titlinum.
Oft hefur verið fagnað í Höllinni en nú verður heldur betur tilefni til þess
En víkjum að leiknum sjálfum, Afturelding og Akureyri hafa mæst þrisvar í vetur, tvisvar á Akureyri og einu sinni í Mosfellsbæ og Akureyri sigrað í öll skiptin. Sigurinn í Mosfellsbæ var þó torsóttur og lokatölur eins marks sigur 24-25.
Það er allt undir hjá Aftureldingu og því skyldi enginn gera sér grillur um auðveld stig á móti þeim. Afturelding er í baráttu upp á líf og dauða um sæti í úrvalsdeild en þeir eru jafnir Selfyssingum að stigum á botni deildarinnar.
Í síðustu leikjum Aftureldingar hefur gengið á ýmsu, liðið hefur ýmist verið að spila stórvel og er skemmst að minnast þess að Afturelding vann frækinn útisigur á Fram í fimmtándu umferð, 26-32. Í næstu leik á eftir unnu þeir á heimavelli sínum eins marks sigur á Haukum 25-24. Þar á eftir komu tveir leikir sem töpuðust stórt, fyrst með 11 mörkum gegn FH og síðan með 10 mörkum gegn HK á heimavelli sínum í Mosfellssveitinni. Valsmenn máttu kallast heppnir að fara með bæði stigin gegn Aftureldingu í síðustu umferð þannig að þeir eru sýnd veiði en ekki gefin.
Frá því að liðin mættust hér fyrr í vetur hefur Afturelding endurheimt Hilmar Stefánsson úr meiðslum en Hilmar hefur verið leiðtogi liðsins undanfarin ár og eflaus muna margir eftir honum frá því að hann lék hér á Akureyri með KA á árum áður. Hilmar hefur verið markahæsti leikmaður liðsins í síðustu leikjum, skoraði t.d. sex mörk á móti Val, 9 mörk á móti HK og 7 á móti Haukum.
Þá fékk Afturelding varnar- og línumanninn Þránd Gíslason aftur um áramótin en hann var samherji Andra Snæs Stefánssonar með danska 1. deildarliðinu Odder fyrir áramót.
Einnig gekk skyttan Sverrir Hermannsson til liðs við Aftureldingu í lok janúar en hann lék áður með Víkingum. Að öðru leiti er lið Aftureldingar svipað og við sáum það fyrir áramótin.
Albesti leikmaður þeirra er þó ónefndur en það er enginn annar en markvörðurinn Hafþór Einarsson sem hefur heldur betur staðið fyrir sínu í vetur og einmitt farið á kostum gegn sínum fyrrum félögum Akureyri.
Hafþór besti leikmaður Aftureldingar gegn Akureyri með verðlaunin
Þó svo að Akureyri hafi þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn þá verður ekkert gefið eftir heldur leikið til sigurs og eins og áður hefur komið fram verður hátíðarstemming í leikslok þegar deildarmeistararnir verða krýndir og bikarinn fer á loft. Það er ekki á hverjum degi sem Akureyringar fá að upplifa slíkar stundir á heimavelli og því skorum við á alla sem vettlingi geta valdið til að fjölmenna, troðfylla Íþróttahöllina og taka þátt í gleðinni.