Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Jafntefli í döprum leik í Digranesi - Akureyri Handboltafélag
Akureyri mætti HK í Digranesi í gær í lokaleik 23. umferðar Olís Deildarinnar. Eftir að Akureyri hafði leitt í hálfleik 10-12 endaði leikurinn með jafntefli 22-22. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 um leikinn en í myndbandinu sjást nokkur góð tilþrif.
Atli þarf að bíða til sunnudags
13. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leik HK og Akureyrar seinkað til sunnudags
Leik HK og Akureyrar í 23. umferð Olís deildar karla sem átti að fara fram á morgun laugardag hefur verið færður til sunnudagsins vegna slæmra veðurskilyrða. Leikurinn er því settur þann 15. mars klukkan 16:00. Endilega látið vita og mætum sem flest í Digranesið og hvetjum okkar lið til sigur, áfram Akureyri!
Hörkuleikur framundan
12. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri leikur í Kópavogi á sunnudaginn
Nú rétt í þessu var HSÍ að gefa út að leikur Akureyrar og HK sem vera átti á laugardaginn hafi verið færður yfir á sunnudaginn vegna veðurútlits. Akureyri er í hörkubaráttu um að ná sem bestu sæti í úrslitakeppninni á meðan HK er að reyna að spyrna sér frá botninum. Það má búast við mikilli spennu enda mikið í húfi hjá báðum liðum. Liðin hafa mæst tvisvar á tímabilinu, einmitt í fyrstu umferð Olís-deildarinnar en þá vann Akureyri 21-25 í Kópavoginum og aftur í Íþróttahöllinni þar sem Akureyri vann 23-18.
Töluverð batamerki hafa verið á HK liðinu í síðustu leikjum, þannig unnu þeir sannfærandi útisigur á Fram 25-32. Síðan hafa komið þrír naumir tapleikir, 24-28 gegn Val, þriggja marka tap gegn ÍR á útivelli 31-28 og nú síðast þriggja marka tap gegn FH 25-28.
Það er því ljóst að ekki má vanmeta HK liðið sem berst fyrir tilveru sinni í deildinni og leggur klárlega allt í sölurnar. Við hvetjum alla stuðningsmenn sem verða staddir á höfuðborgarsvæðinu til að mæta í Digranesið á sunnudaginn klukkan 16:00. Hvar verður þú?
Heiðar Þór Aðalsteinsson í leiknum gegn HK 13. nóvember. Þetta virðist vera í upphafi skeggsöfnunarinnar