Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Sanngjarn sex marka sigur á meisturum ÍBV - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Þorleifur Árni Björnsson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Kristján Orri fór hamförum í gær og skoraði 9 mörk úr 9 skotum!
22. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl eftir leik Akureyrar og ÍBV í gær
Akureyri vann frábæran sigur á sterku liði ÍBV í gær, við höldum áfram að tína til viðtöl við þjálfara og leikmenn frá öðrum miðlum. Byrjum á Einari Sigtryggssyni, blaðamanni mbl.is sem ræddi við Kristján Orra Jóhannsson og Magnús Stefánsson:
Kristján Orri Jóhannsson: Við erum drullugóðir
Kristján Orri Jóhannsson var í fantaformi þegar Akureyringar lögðu Eyjamenn í Olís-deild karla í dag 25:19 á Akureyri. Skoraði hann níu mörk úr jafn mörgum skotum. Kristján Orri hrósaði liði sínu í leikslok.
Þetta var glæsilegt. Vörnin okkar var frábær og Hreiðar að verja hrikalega vel. Sóknarleikurinn var líka agaður og Nicklas var að mata mig í horninu. Ég þakkaði bara pent og nýtti mér það. Líklega var þetta einn af okkar betri leikjum í vetur og við duttum aldrei niður í einhverja vitleysu. Ég lít á þetta sem fínan undirbúning fyrir framhaldið og úrslitakeppnina. Það er mikilvægt að toppa á réttum tíma og við sýndum það í dag að þegar við spilum eins og menn þá erum við drullugóðir.“
Nú var Sigþór Árni Heimisson ekki með í leiknum vegna meiðsla en það virtist ekki há liðinu. „Já sem betur fer söknuðum við hans ekki mikið. Annars er þetta hætt að vera fyndið hvað meiðslin varðar. Vonandi er þetta búið þannig að við getum stillt upp sterkasta hópnum í úrslitakeppninni“ sagði Kristján Orri að lokum.
Kristján Orri fagnar marki með Sverre
Magnús Stefánsson: Vorum einfaldlega slappir
Eyjamenn voru snöggir að forða sér frá Akureyri eftir að hafa tapað fyrir norðanmönnum í Olísdeild karla í handknattleik í dag, 25:19.
Blaðamaður rétt náði í skottið á Magnúsi Stefánssyni á meðan hann klæddi sig í fötin. Magnús komst ekki einu sinni í sturtu þar sem Eyjamenn voru að missa af flugi. Fyrirliðinn var ekkert of hress.
„Við vorum einfaldlega slappir í þessum leik. Ég er ekki alveg að átta mig á þessu svona í fljótu bragði en við leggjumst bara yfir okkar leik og reynum að bæta okkur. Við erum ekki á þeim stalli sem við viljum vera á og þurfum að trekkja okkur í gang. Við erum tvöfaldir meistarar en förum ekki langt á því. Það er eins og menn bíði bara eftir að allt hrökkvi í gang en það kann ekki góðri lukku að stýra. Ég er alls ekki sáttur með frammistöðuna í síðustu leikjum og við þurfum að fara í smá sjálfsskoðun“ sagði Magnús að lokum og rauk upp í rútu.
Magnús í hasar á línunni gegn Akureyri
Þá liggur leiðin til Birgis H. Stefánssonar á visir.is sem ræddi við Atla Hilmarsson auk þess sem hann ræddi við Gunnar Magnússon, þjálfara ÍBV:
Atli Hilmarsson: Búnir að lenda illa í þeim
„Frábær leikur“, var svar Atla Hilmarssonar þjálfara Akureyrar þegar hann var spurður út í fyrstu viðbrögð strax eftir leik.
„Ég er mjög ánægður með það hvernig liðið kemur til leiks, vörnin einstaklega góð og við vorum skynsamir frammi. Við erum búnir að lenda illa í þeim núna tvisvar en vorum mun skynsamari í dag. Fyrst og fremst er þetta þó vörn og markvarsla.“
Hreiðar byrjaði ekki leikinn en kom nokkuð snemma inn og endaði með sautján varin skot.
„Já og þar af þrjú víti. Það er auðvitað alveg frábært að vera með tvo svona góða markmenn. Tomas er búinn að vera frábær í allan vetur og svo er aldeilis flott að eiga svo einn svona á bekknum sem kemur og hjálpar til.“
„Fyrir okkur er þetta fyrst og fremst gott veganesti inn í úrslitakeppnina. Núna erum við komnir þangað og ætlum að klifra eitthvað ofar ef það er hægt ásamt því að nota þessa leiki til að koma liðinu í gang fyrir úrslitakeppni.“ „Vonandi getum við svo farið að stilla upp okkar besta liði.“
Gunnar Magnússon: Verðum að nýta tímann ef við ætlum að vera með í þessu
„Við gerum okkur þetta rosalega erfitt,“ sagði Gunnar Magnússon strax eftir leik.
„Við förum með einhver þrjú víti á ögurstundu og sex eða sjö hraðaupphlaup sem gerir þetta svo hrikalega erfitt. Það er ekki hægt að koma hingað norður og fara svona illa með þessi hraðaupphlaup og víti.“
Eyjamenn virtust ekki geta hitt á markið í upphafi leiks og náðu svo ekki að vinna upp það forskot seinna í leiknum.
„Já, við vorum lengi í gang og í heildina þá vantaði bara upp á allt saman. Vörnin var ekki nægilega góð, sóknarlega voru flestir kaldir og ekki neinn að draga vagninn og hraðaupphlaupin voru ekki til staðar.“
„Akureyri var betra en við á öllum sviðum í dag og við verðum að spýta í lófanna, þetta er ekki nægilega gott.“
„Ég er ekki nógu ánægður með standið á liðinu í dag og það er stutt í úrslitakeppni, við þurfum að nýta tímann fram að því gríðarlega vel ef við ætlum að vera með í þessu.“
Atli hefur góða stjórn á sínum mönnum og ræðir hér við Peking vörnina
Þá fjallaði RÚV aðeins um leikinn í fréttatíma sínum í gær og ræddi þar við Hreiðar Levý Guðmundsson ásamt Gunnari Magnússyni þjálfara ÍBV.
Hreiðar var tekinn í viðtal hjá RÚV
21. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Svipmyndir frá leik Akureyrar og ÍBV (myndband)
Akureyri vann magnaðan sigur á Íslands- og Bikarmeisturum ÍBV fyrr í dag 25-19. Hér má sjá svipmyndir frá glæsisigrinum en RÚV sýndi þessa frétt um leikinn þar sem Hreiðar Levý Guðmundsson, maður leiksins, er meðal annars tekinn í viðtal.
Eyjamenn hafa heldur betur safnað titlum
20. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri mætir bikarmeisturunum á laugardaginn
Það er svo sannarlega hægt að tala um stórleik í Íþróttahöllinni á laugardaginn þegar Íslandsmeistarar ÍBV og nýkrýndir bikarmeistarar koma norður. Það er mikið í húfi fyrir bæði lið en einungis munar tveim stigum á liðunum, ÍBV með 23 stig en Akureyri 21 en þau sitja í 6. og 7. sæti deildarinnar og hafa klárlega að markmiði að klifra aðeins ofar í deildina áður en til úrslitakeppninnar kemur.
Bæði lið misstigu sig í síðustu leikjum gegn botnliðum deildarinnar, ÍBV tapaði gegn óvænt gegn Stjörnunni í Garðabænum 28-26 og Akureyri gerði aðeins jafntefli gegn HK 22-22. Þannig að leikmenn liðanna vilja örugglega bæta fyrir þá leiki.
Fyrir utan þennan leik eiga liðin að auki eftir þrjá leiki í deildarkeppninni, Akureyri á eftir útileik gegn Haukum, síðan heimaleik gegn FH og loks útileik gegn ÍR. ÍBV á hins vegar eftir heimaleik gegn Aftureldingu, heimaleik gegn HK og loks útileik gegn FH.
Í ljósi þess að öll liðin í deildinni hafa verið að vinna hvert annað þá á Akureyri meira að segja ennþá fræðilegan möguleika á fjórða sætinu í deildinni og þar með heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. En til þess að það gangi eftir þarf Akureyri að vinna alla fjóra leiki sína og jafnframt þarf FH að tapa öllum sínum þrem leikjum, gegn Fram, Akureyri og ÍBV.
Leikurinn gegn ÍBV hefst klukkan 17:00 á laugardaginn.
Magnús Stefánsson frá Fagraskógi, fyrirliði ÍBV
Það var vel tekist á þegar liðin mættust í Höllinni fyrr í vetur
Jafnframt bendum við á að Hamrarnir eiga sinn síðasta heimaleik í deildinni á sunnudaginn, þar mæta þeir Mílunni (sem er af stór-Selfoss svæðinu) og hefst sá leikur klukkan 15:30 í Íþróttahöllinni.