Fylkir - Akureyri 29-23
10. febrúar 2007
Akureyri Handboltafélag lék sinn fyrsta sjónvarpsleik þann 10. febrúar 2007 þegar liðið sótti Fylki heim. Eftir jafnan leik þá stóðu heimamenn uppi sem sigurvegarar. Hreiðar Levý Guðmundsson stóð í marki Akureyrar og varði 22 skot á sama tíma fór Andri Snær Stefánsson fyrir sóknarleik Akureyrar með 8 mörk.
Í liði Fylkis léku Akureyringarnir Heimir Örn Árnason, Guðlaugur Arnarsson, Hreinn Þór Hauksson og Brynjar Þór Hreinsson. Það var hinsvegar Arnar Jón Agnarsson sem átti stórleik og skoraði mikilvæg mörk. Hlynur Morthens átti einnig stórleik í marki Fylkis