Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Eins marks tap gegn Haukum í Hafnarfirði - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2014-15

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Haukar - Akureyri  24-23 (12-15)
Olís deild karla
Schenkerhöllin
Sun 21. sept 2014 klukkan: 15:00
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Þorleifur Árni Björnsson. Eftirlit Kristján Halldórsson
Umfjöllun

Við veljum Sigþór mann leiksins að þessu sinni

21. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Eins marks tap gegn Haukum í Hafnarfirði

Eftir magnaðan leik í fyrri hálfleik mátti Akureyrarliðið sætta sig við eins marks tap gegn Haukum í dag. Akureyrarliðið gat ekki teflt fram skyttunni Brynjari Hólm Grétarssyni sem varð fyrir því að snúa ökkla á æfingu í gær. Það kom svo í ljós í upphituninni að Brynjar væri ekki klár í leikinn og tók Ingimundur Ingimundarson stöðu hans í sóknarleiknum.


Ingimundur tók fullan þátt í sókninni og skoraði þrjú mörk

Akureyri hóf leikinn af miklum krafti og skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins. Akureyri var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddi lengst af með þrem til fjórum mörkum. Vörnin var frábær og sóknin gekk smurt. Sigþór Árni Heimisson lék á alls oddi og skoraði fimm mörk í fyrri hálfleiknum.


Sigþór Árni lék Haukavörnina grátt í fyrri hálfleiknum

Hjá Haukum var Árni Steinn Steinþórsson nánast sá eini sem fann glufur á vörn Akureyrar og skoraði sex mörk. En staðan í hálfleik var 12-15 fyrir Akureyri.

Þrándur Gíslason skoraði fyrsta mark seinni hálfleiksins en í kjölfarið komust Haukar heldur betur inn í leikinn með næstu fjórum mörkum og náðu forystunni í fysta sinn í leiknum 17-16.
Jafnt var á næstu tölum upp í 19-19 en Haukar náðu í kjölfarið forystu sem varð mest þrjú mörk, 24-21 en með seiglu tókst að vinna hana niður í eitt mark 24-23. Akureyri vann boltann þegar 10 sekúndur voru til leiksloka en sá tími dugði ekki til og fögnuðu Haukar því eins marks sigri.

Óhætt er að segja að þetta hafi verið súrt eftir frábæran fyrri hálfleik. Sóknarleikurinn í seinni hálfleik hökti dálítið og alltof mörg mistök gerð. Þannig töpuðust tíu boltar í seinni hálfleiknum einum og munar um minna.

Varnarleikurinn var yfirhöfuð góður, Tomas fann sig þó ekki í markinu en Bjarki Símonarson átti ágæta innkomu undir lok leiksins.


Vörn gegn Adam Hauki Baumruk. Myndir: sport.is

Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 7 (4 úr vítum), Sigþór Heimisson 6, Ingimundur Ingimundarson 3, Andri Snær Stefánsson, Heiðar Þór Aðalsteinsson og Þrándur Gíslason 2 hver, Elías Már Halldórsson 1 mark.
Tomas Olason og Bjarki Símonarson vörðu fimm skot hvor.

Mörk Hauka: Adam Haukur Baumruk 7 Árni Steinn 6 (1 úr víti), Heimir Óli Heimisson 4, Tjörvi Þorgeirsson 2, Þröstur Þráinsson, Jón Þorbjörn Jóhannsson, Leonharð Þorgeir Harðarson, Einar Pétur Pétursson og Egill Eiríksson 1 mark hver.
Giedrius Morkunas varði 8 skot og Grétar Ari Guðjónsson 1.

Næsti leikur Akureyrar er heimaleikur gegn Stjörnunni næstkomandi fimmtudag klukkan 19:00.

Tengdar fréttir

Sverre hlakkar til fyrsta heimaleiksins

21. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hvað sögðu menn eftir leik Hauka og Akureyrar?

Eftir hörkuleik Akureyrar og Hauka eru komin nokkur viðtöl við leikmenn og þjálfara sem við drögum hér saman. Byrjum á viðtölum Ívars Benediktssonar, blaðamanns Morgunblaðsins sem ræddi við Sverre Andreas Jakobsson og Patrek Jóhannesson, þjálfara Hauka:

Sverre: Yngist upp um mörg ár

„Við misstum dampinn um stund í síðari hálfleik og það varð okkur að falli,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson, leikmaður Akureyrar og annar þjálfari liðsins.
Akureyringar voru þremur mörkum yfir, 15:12, að loknum fyrri hálfleik en voru síðan komnir þremur mörkum undir, 24:21, þegar fimm mínútur voru til leiksloka.
„Við misstum hinsvegar aldrei trúna á að við gætum náð öðru stiginu eða báðum. Ég verð að hrósa liðinu fyrir baráttuanda. Það tekur maður jákvætt út úr þessum leik þótt aldrei sé skemmtilegt að tapa,“ sagði Sverre.

Sverre segir gaman að vera kominn heim eftir að hafa meira og minna í Þýskalandi í átta ár. „Ég hef rosalega gaman af þessu og eiginlega meiri gaman af þessu en ég hélt með alla þessa stráka í kringum mig og góðan hóp. Maður yngist upp um mörg ár þótt ég sé ekki eins snöggur og á árum áður. Eftir fyrstu leikina sé ég ekki eftir að hafa tekið eitt ár í viðbót.“
Eftir tvo leiki á útivelli í tveimur fyrstu umferðunum þá leika Akureyringar loksins á heimavelli á fimmtudagskvöldið þegar Stjarnan kemur í heimsókn. „Ég vona að Akureyringar komi og styðji við bakið á okkur,“ segir Sverre Andreas Jakobsson en nánar er rætt við hann á meðfylgjandi myndskeiði.







Patrekur: Matti kom inn með kraft í síðari

„Fyrri hálfleikur var ekki góður og engan vegin eins og ég vildi sjá,“ sagði Patrekur Jóhannesson, þjálfari Hauka. Haukar voru þremur mörkum undir í hálfleik, 15:12, en sneru við blaðinu í síðari hálfleik. Patrekur var mun sáttari við síðari hálfleik.
Hann sagði að þá hefði Haukahjartað vaknað hjá leikmönnum og þar hefði Matthías Árni Ingimarsson leikið stórt hlutverk. „Seinni hálfleikur var allt annar af okkar hálfu. Ég hef oft verið gagnrýninn á Matta en hann kom með ákveðinn kraft inn í leikinn sem batt leik okkar saman. Adam Haukur var sterkur í síðari hálfleik og Árni Steinn var góður allan leikinn. Við verðum bara að fá alla til þess að stíga í takt,“ sagði Patrekur.

Ítarlegra viðtal er við Patrek á meðfylgjandi myndskeiði.



Hjá vefsíðunni fimmeinn.is tók Lúther Gestsson viðtölin sem hér fara á eftir:

Sigþór: Skítamörk að leka inn hjá okkur

Sigþór Árni Heimisson átti prýðisgóðan leik í liði Akureyrar eins og í fyrsta leik mótsins. Hann ar að vonum óánægður að hafa ekki náð allavega öðru stiginu á móti Haukum í dag, en honum fannst það svolítill vendipunktur að Akureyringar fengu of margar brottvísanir í seinni hálfleik. En að öðru leiti var hann nokkuð sáttur við liðið, þeir hefðu náð að halda lykilmönnum Hauka í skefjum nánast allan fyrri hálfleikinn, en örlítil stemningsleysi hefði gert vart við sig þegar líða fór á.


Kristján: Helv... Haukarnir ná alltaf að bakka

Kristján Orri Jóhannesson hornamaður Akureyrar var svekktur að hafa tapað seinni hálfleiknum á móti Haukum. Akureyringar fengu tækifæri til að jafna undir lokin en hann sagði að hugsanlega hefði mátt gera betur þar, en leikhléin hefðu verið búinn og lítið sem hægt hefðu verið hægt að gera þar.


Adam Haukur: Ég var ömurlegur í fyrri hálfleik

Adam Haukur Baumruk var sáttur að fá bæði stigin úr leiknum á móti Akureyri. Flestir hefðu verið slakir í fyrri hálfleik og menn ekki að sýna sitt besta, hann sjálfur hefði verið slakur í fyrri hálfleiknum og lítið annað að gera en að rífa sig upp.


Patrekur: Það var einhver hundur í mér fyrir leikinn

Patrekur var ósáttur við margt í dag og var sammála um að þetta hefði verið leikur tveggja hálfleika. Stundum gerist þetta sagði hann og allt liðið hefði verið slakt í fyrri hálfleik. Það er ennþá hellingsvinna eftir í að móta liðið. Fullt af mönnum eru enn að mótast. Hjartað þarf að vera til staðar og ég óska þess að leikmenn taki það með sér í næsta leik á móti FH sagði Patti í lokinn.



Sömuleiðis eru viðtöl við Sverre og Patrek á sport.is

Sverre Jakobsson: Viljinn var til staðar

Patrekur Jóhannesson: Þurftum að hafa mikið fyrir þessu



Erfiður útileikur framundan

21. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur gegn Haukum í dag, sunnudag

Það er stutt á milli fyrstu leikja í Olís-deildinni og Akureyrarliðið heldur í Hafnarfjörðinn í dag til móts við meistaralið Hauka. Sem kunnugt er þá urðu Haukar bæði deildar- og bikarmeistarar í fyrra.

Patrekur Jóhannesson þjálfar Hauka líkt og áður, en nokkrar breytingar hafa orðið á liðinu frá því í fyrra.


Patrekur á hliðarlínunni gegn Fram á fimmtudaginn

Elías Már Halldórsson er sem kunnugt er kominn til liðs við Akureyri, skyttan Sigurbergur Sveinsson farinn til Þýskalands og hornamaðurinn Þórður Rafn Guðmundsson til Noregs. Nokkrir hafa að sjálfsögðu komið til liðsins, t.d. línumaðurinn Heimir Óli Heimisson sem sneri heim frá Svíþjóð.

Haukarnir fengu extra undirbúningsleiki fyrir tímabilið þegar þeir léku tvo hörkuleiki gegn rússneska liðinu Dinamo Astrakhan og voru virkilega óheppnir að falla úr EHF keppninni.

Líkt og Akureyri hófu Haukar leik í Olís-deildinni á fimmtudaginn þar sem þeir töpuðu 21-22 fyrir Fram í miklum baráttuleik.
Í þeim leik var landsliðsmaðurinn Árni Steinn Steinþórsson langmarkahæstur með 9 mörk og ljóst að Akureyrarvörnin þarf að stöðva hann. Hinn stórgóði Adam Haukur Baumruk kom næstur með 3 mörk og aðrir minna.


Árni Steinn í leiknum gegn Fram á fimmtudaginn. Myndir fimmeinn.is

Þetta verður pottþétt hörkuleikur og ástæða til að hvetja alla stuðningsmenn á suðvesturhorninu til að fjölmenna á leikinn sem hefst klukkan 15:00 í Schenkerhöllinni.

Eins og menn muna þá fékk skyttan unga, Brynjar Hólm Grétarsson beint rautt spjald í leik Akureyrar gegn HK á fimmtudaginn og trúlega á leið í leikbann. Aganefnd HSÍ fundar reyndar ekki fyrr en á þriðjudaginn þannig að Brynjar er ekki í banni í leiknum á morgun.

Við gerum ráð fyrir að verða með beina textalýsingu frá leiknum hér á heimasíðunni.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson