Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Jafntefli í döprum leik í Digranesi - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2014-15

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Myndband frá leiknum      Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    HK - Akureyri  22-22 (10-12)
Olís deild karla
Digranes
Sun 15. mars 2015 klukkan: 16:00
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson
Umfjöllun

Tomas tók 21 skot í dag og var besti maður Akureyrar





15. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Jafntefli í döprum leik í Digranesi

Akureyri og HK mættust í mikilvægum leik í Digranesi í dag. Bæði lið þurftu á sigri að halda, Akureyri er að berjast fyrir sem bestu sæti í úrslitakeppninni á meðan HK berst fyrir lífi sínu í deildinni. Það var hinsvegar erfitt að sjá það á spilamennsku liðanna að mikið væri undir, handboltinn sem boðið var upp á var mjög slakur og stemningin á pöllunum eftir því.

Leikurinn fór rólega af stað, eftir tíu mínútna leik var staðan 1-2 fyrir Akureyri. Sóknin var alls ekki beitt á meðan varnarleikurinn leit vel út og Tomas varði þá bolta sem hann þurfti að taka. Þá hinsvegar kom flottur kafli hjá okkar mönnum þar sem sóknarleikurinn fór að ganga ágætlega smurt fyrir sig fyrr en varir var staðan orðin 2-7 og beið maður eftir því að HK játaði sig sigraða.

Á þessum tíma var áhugavert að fylgjast með gangi mála, stemningin í húsinu var engin og ríkti algjör þögn í salnum, eina hljóðið sem heyrðist var þegar boltinn gekk á milli manna! Heimamenn tóku leikhlé og komust betur í takt við leikinn á meðan okkar menn gáfu eftir og hættu að gera það sem hafði verið að ganga vel.

Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 10-12 fyrir Akureyri og meðbyrinn með HK. Sigþór Árni hafði borið sóknarleik Akureyrar uppi og var gaman að sjá kraftinn í Sissa sem var með fjögur mörk í fyrri hálfleiknum ásamt því að sækja vítaköst og gefa stoðsendingar.


Sigþór Árni var gríðarlega öflugur í fyrri hálfleiknum. Mynd: visir.is

Síðari hálfleikurinn hófst eins og sá fyrri endaði, HK spilaði einfaldlega betur og okkar menn ekki að sýna sitt rétta andlit. Þegar 20 mínútur lifðu leiks höfðu HK-ingar náð forystunni og Atli Hilmars gat ekki annað en tekið leikhlé. Öskrin í Atla gáfu mönnum greinilega smá kraft en Akureyri náði aftur yfirhöndinni í leiknum.

Heimir Örn kom inn í leikinn og átti strax magnaða línusendingu sem gaf vítakast. Heimir fékk síðan tvo ruðningsdóma á sig áður en hann fékk beint rautt spjald frá dómurum leiksins. Heimir fór í andlitið á Þorgrími, þetta leit ekki vel út en persónulega hefði ég haldið að tveggja mínútna brottvísun myndi duga. En dómnum verður ekki breytt og því tæplega sex mínútna innkoma hjá Heimi í dag.

Tomas var að verja vel yfir allan leikinn en vörnin var líka að standa fínt heilt yfir. Sóknarleikurinn var erfiður í síðari hálfleiknum en með því að verjast vel komst liðið í góða stöðu 20-22 þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum. Þegar rétt rúmar þrjár mínútur voru eftir fékk Akureyri vítakast en Lárus sá við Heiðari sem tók bara vítaköst í dag. Þetta var þriðja vítið sem fór forgörðum hjá Akureyri í leiknum til þessa.


Tomast Olason, besti maður liðsins í dag kemur boltanum í leik. Mynd: visir.is

Leó Snær sem var öflugur í liði HK minnkaði muninn í eitt mark í stað fyrir að Akureyri kæmist þremur mörkum yfir. Nicklas Selvig fór svo í gegn en enn og aftur varði Lárus í markinu og allt í einu gátu heimamenn jafnað metin. Tomas hinsvegar varði vel og tæp mínúta eftir, en allt kom fyrir ekki og sókn Akureyrar var vægast sagt klaufaleg og Leó Snær jafnaði metin.

Atli tekur þá leikhlé til að leggja á ráðin til að klára leikinn enda aðeins 25 sekúndur eftir. Sigþór Árni sem hafði ekki verið mjög áberandi í síðari hálfleiknum fintaði sig í gegn og fékk vítakast. Tíminn rann út og vítið því einungis eftir. Kristján Orri sem hafði ekki átt sinn besta leik fór á punktinn en hann hafði klúðrað víti fyrr í leiknum. Heiðar Þór hafði hinsvegar klúðrað tveimur vítum og því sjálfsagt að leyfa öðrum að taka vítakastið.

Lárus markvörður HK varði hinsvegar vítið frá Kristjáni Orra og jafntefli því niðurstaðan. Gríðarlega svekkjandi að vinna ekki leikinn enda liðið í dauðafæri að klára leikinn á síðustu mínútunum en allt kom fyrir ekki.

Heilt yfir var leikurinn frekar dapur, sóknarleikur Akureyrar var slakur og lítið í gangi fyrir utan góðan kafla í fyrri hálfleiknum. Vörnin stóð fyrir sínu lengst af en of oft kom fyrir að HK skoraði þegar menn slökuðu aðeins á, þá var Tomas góður í markinu og varði alls 21 skot. Hrósa ber Halldóri Loga Árnasyni en Dóri var öflugur á línunni, skoraði 5 mörk og sótti nokkur vítaköst ásamt því að vera fastur fyrir í vörninni. Einnig sýndi Ingimundur Ingimundarson flotta takta á köflum.

Hinsvegar set ég spurningamerki við það að Arnór Þorri hafi verið ónotaður varamaður í dag, sóknarleikurinn var mjög erfiður og hefði getað verið sterkur leikur að prófa að henda Arnóri inn þó það hefði ekki verið nema 2-3 sóknir. Aðeins til að hrista upp í hlutunum og gefa öðrum smá hvíld.

Það stefnir allt í það að Akureyri endi í 7. sætinu eins og staðan er núna. Þó eru enn fjórar umferðir eftir af deildinni og næsti leikur verður mikilvægur þegar ÍBV kemur norður. Það er þó allavega ljóst að Akureyrarliðið þarf að leika mikið mun betur í þeim leik ef það eiga að koma einhver stig útúr þeim leik.

Tengdar fréttir

Sigþór skorar tvö flott mörk í fréttinni

16. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Svipmyndir frá leik HK og Akureyrar (myndband)

Akureyri mætti HK í Digranesi í gær í lokaleik 23. umferðar Olís Deildarinnar. Eftir að Akureyri hafði leitt í hálfleik 10-12 endaði leikurinn með jafntefli 22-22. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 um leikinn en í myndbandinu sjást nokkur góð tilþrif.



Atli þarf að bíða til sunnudags

13. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leik HK og Akureyrar seinkað til sunnudags

Leik HK og Akureyrar í 23. umferð Olís deildar karla sem átti að fara fram á morgun laugardag hefur verið færður til sunnudagsins vegna slæmra veðurskilyrða. Leikurinn er því settur þann 15. mars klukkan 16:00. Endilega látið vita og mætum sem flest í Digranesið og hvetjum okkar lið til sigur, áfram Akureyri!


Hörkuleikur framundan

12. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri leikur í Kópavogi á sunnudaginn

Nú rétt í þessu var HSÍ að gefa út að leikur Akureyrar og HK sem vera átti á laugardaginn hafi verið færður yfir á sunnudaginn vegna veðurútlits. Akureyri er í hörkubaráttu um að ná sem bestu sæti í úrslitakeppninni á meðan HK er að reyna að spyrna sér frá botninum. Það má búast við mikilli spennu enda mikið í húfi hjá báðum liðum.
Liðin hafa mæst tvisvar á tímabilinu, einmitt í fyrstu umferð Olís-deildarinnar en þá vann Akureyri 21-25 í Kópavoginum og aftur í Íþróttahöllinni þar sem Akureyri vann 23-18.

Töluverð batamerki hafa verið á HK liðinu í síðustu leikjum, þannig unnu þeir sannfærandi útisigur á Fram 25-32. Síðan hafa komið þrír naumir tapleikir, 24-28 gegn Val, þriggja marka tap gegn ÍR á útivelli 31-28 og nú síðast þriggja marka tap gegn FH 25-28.

Það er því ljóst að ekki má vanmeta HK liðið sem berst fyrir tilveru sinni í deildinni og leggur klárlega allt í sölurnar. Við hvetjum alla stuðningsmenn sem verða staddir á höfuðborgarsvæðinu til að mæta í Digranesið á sunnudaginn klukkan 16:00. Hvar verður þú?


Heiðar Þór Aðalsteinsson í leiknum gegn HK 13. nóvember. Þetta virðist vera í upphafi skeggsöfnunarinnar


Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson