Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Akureyri tryggði sér oddaleik á sunnudaginn - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2014-15

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Myndband frá leiknum      Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Akureyri - ÍR  23-20 (15-11)
8-liða úrslit karla
Íþróttahöllin
Fös 10. apríl 2015 klukkan: 19:00
Dómarar: Gísli H. Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. Eftirlit: Einar Sveinsson
Umfjöllun

Kristján Orri, Tomas og Nicklas stóðu heldur betur fyrir sínu í leiknum





11. apríl 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri tryggði sér oddaleik á sunnudaginn

Það var ekki lítið undir í leiknum, tap í leiknum hefði markað endalok tímabilsins hjá Akureyri og það voru menn hreint ekki tilbúnir að láta yfir sig ganga. Brynjar Hólm Grétarsson byrjaði í vinstri skyttunni og hann var ekki lengi að láta vita af sér, heldur braust í gegn og skoraði fyrsta mark leiksins eftir örfáar sekúndur.

ÍR-ingar svöruðu að bragði og höfðu frumkvæðið í markaskorun til að byrja með, allt upp í 5-6. Hreiðar Levý byrjaði í Akureyrarmarkinu og fann sig ekki nægilega þannig að Tomas kom í markið.
Í kjölfarið komu fjögur Akureyrarmörk í röð og staðan orðin 9-6. ÍR-ingar létu það ekki á sig fá og áttu sömuleiðis fjögurra marka kafla stuttu síðar og komust yfir, 10-11 og fjórar mínútur til hálfleiks.


Sverre brá sér í sóknina og skoraði gott mark af línunni

Þessar lokamínútur hálfleiksins voru hins vegar algjörlega eign Akureyrar sem skoraði fimm síðustu mörk hálfleiksins, þar á meðal átti Nicklas Selvig tvö algjör draumamörk utan af velli.
Markaskorun Akureyrar dreyfðist töluvert í fyrri hálfleiknum, Kristján Orri Jóhannsson með 4 mörk, Brynjar Hólm og Nicklas 3 hvor, Heiðar Þór 2, Halldór Logi, Heimir Örn og Sverre 1 mark hver. Hálfleiksstaðan 15-11.

Kristján Orri skoraði upphafsmark seinni hálfleiksins þannig að komin voru sex Akureyrarmörk í röð. Eftir rúmlega fimm mínútna leik varð Akureyrarliðið fyrir áfalli þegar Nicklas Selvig þurfti að yfirgefa völlinn með illa snúinn ökla og kom ekki meira við sögu, en Nicklas hafði átt fínan leik fram að því.

Það tók ÍR-inga rúmlega átta mínútur að skora sitt fyrsta mark í hálfleiknum, reyndar hafði Akureyri aðeins skorað eitt mark á þeim tíma. Næstu mínútur skiptust liðin á að skora en í stöðunni 19-15 hrökk allt í baklás í sóknarleik Akureyrar og ÍR-ingar gengu á lagið og jöfnuðu í 20-20 þegar sjö og hálf mínúta var til leiksloka og var farið að fara um marga í Höllinni.

En líkt og í lok fyrri hálfleiks skellti Akureyri í lás, vörnin frábær og Tomas komst í ham og varði allt sem slapp í gegn. Kristján Orri bætti við tveim mörkum, staðan orðin 22-20 og athyglisvert að Kristján Orri hafði skorað öll sjö mörk Akureyrar í hálfleiknum. Það var hins vegar Brynjar Hólm Grétarsson sem endaði leikinn eins og hann byrjaði með glæsilegu marki, stöngin inn þannig að Kristján Orri átti ekki öll mörk liðsins eins og stefndi í.

Frábær þriggja marka sigur, 23-20 niðurstaðan og ljóst að það verður barist til enda í oddaleiknum á sunnudaginn þegar liðin mætast í Breiðholtinu. Sigurvegari þess leiks heldur áfram og mætir Aftureldingu í fjögurra liða úrslitunum.

Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 11 (5 úr vítum), Brynjar Hólm Grétarsson 4, Nicklas Selvig 3, Heiðar Þór Aðalsteinsson 2, Halldór Logi Árnason, Heimir Örn Árnason og Sverre Andreas Jakobsson 1 mark hver.
Tomas Olason varði 14 skot og Hreiðar Levý Guðmundsson 1.

Mörk ÍR: Davíð Georgsson 5, Sturla Ásgeirsson 4 (3 úr vítum), Arnar Birkir Hálfdánsson 3, Bjarni Fritzson, Daníel Ingi Guðmundsson, Ingi Rafn Róbertsson og Ingvar Heiðmann Birgisson 2 mörk hver.
Arnór Freyr Stefánsson varði 11 skot og Svavar Ólafsson 2.

Dómarar í dag voru reynsluboltarnir Gísli H. Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson og voru býsna langt frá því að eiga sinn besta dag. Fjölmargir dómar þeirra orkuðu mjög tvímælis og áttu menn oft á tíðum erfitt að átta sig á eftir hvaða línu þeir dæmdu og átti það við bæði lið.


Kristján Orri undrandi á ákvörðun Gísla að reka Halldór Loga útaf en Gísla varð ekki haggað

Hvað gerir RÚV?
En hvað um það nú bíður bara hreinn úrslitaleikur klukkan 16:00 á sunnudaginn í Austurberginu. Maður gæti haldið að RÚV myndi heldur betur nýta tækifærið og sýna leikinn en því miður er ekki að sjá nein merki um það í dagskránni hjá þeim. Það er bein útsending frá úrslitum í badminton á aðalstöðinni sem ber raunar að fagna fyrir þeirra hönd en þegar dagskrá „Íþrótta“-stöðvarinnar RÚV 2 er skoðuð þá er dagskráin svohjóðandi: Engir dagskrárliðir fyrir þennan dag.


Kristján Orri, Tomas og Sverre fagna góðum sigri


Tengdar fréttir

Beggi var í hasar í leiknum

12. apríl 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Svipmyndir frá sigurleiknum gegn ÍR

Akureyri vann ÍR eins og frægt er orðið í síðasta leik liðanna á föstudagskvöldið og tryggði þar með oddaleikinn sem spilaður verður í dag klukkan 16:00. RÚV sýndi aðeins úr leiknum í fréttatíma sínum og má sjá þær svipmyndir hér að neðan.

Á sama tíma hvetjum við að sjálfsögðu alla til að mæta í Austurbergið og hvetja okkar lið til sigurs en þið sem ekki komist í Breiðholtið getið fylgst með Beinu Lýsingunni okkar hér á síðunni.



Við viljum benda á að villa er í frétt RÚV en oddaleikurinn fer að sjálfsögðu fram í dag (sunnudag) en ekki á mánudeginum.

Þá hefur Bjarni Fritzson beðist afsökunar á ummælum sínum um dómara leiksins og á hann skilið virðingu fyrir að sjá að sér.


Sævar og Bjarni á góðri stundu í Norðlenska kælinum

11. apríl 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hvað sögðu menn eftir sigurinn á ÍR?

Akureyri vann algjörlega nauðsynlegan sigur á ÍR á heimavelli sínum í gær 23-20 og tryggði þar með hreinan úrslitaleik um sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins á sunnudaginn. Mönnum var eðlilega nokkuð heitt í hamsi enda mikil spenna og mikið í húfi í leiknum. Við rennum hér yfir hvað menn höfðu við fjölmiðla að segja eftir leikinn.

Við byrjum á viðtölum Einars Sigtryggssonar, blaðamanns Morgunblaðsins sem ræddi við Sævar Árnason sem er reyndur í úrslitaeinvígum og einnig ræddi Einar við Ingvar Heiðmann Birg­is­son, einn Akureyringanna í liði ÍR.

Sævar: Réðst á markvörsl­unni

Sæv­ar Árna­son, aðstoðarþjálf­ari Ak­ur­eyr­inga í hand­bolta karla hef­ur upp­lifað margt á ferli sín­um sem leikmaður og þjálf­ari. Hann var feng­inn í stutt spjall eft­ir að lið hans hafði unnið ÍR í kvöld, 23:20. Sig­ur Ak­ur­eyr­inga þýðir að liðin þurfa að gera út um sín mál í odda­leik á sunnu­dag.

Verður það fjórði leik­ur liðanna á ell­efu dög­um. „Mér fannst þessi leik­ur vera dæmi­gerður fyr­ir leiki í svona úr­slita­keppni. Það var al­vöru bar­átta og sveifl­urn­ar voru mikl­ar. Þegar upp er staðið þá finnst mér markvarsl­an í seinni hálfleik hafa stjórnað þess­um sveifl­um. Tom­as byrjaði á að verja vel og við kom­umst í kjör­stöðu. Svo fór Arn­ór að verja fyr­ir ÍR-inga og við lent­um í tóm­um vand­ræðum.Tom­as kláraði svo leik­inn í rest­ina með nokkr­um vörsl­um.

Það er stutt á milli leikja og við erum að róta mikið í mann­skapn­um. Maður verður að nýta hann á sem skyn­sam­ast­an hátt og í seinni hálfleik þá munaði mikið um Nicklas sem fór meidd­ur af velli. Liðsspilið var ekki nógu gott í seinni hálfleikn­um og við sköpuðum ekki nógu góð færi. Þeir komust þannig aft­ur inn í leik­inn,“ sagði Sæv­ar við mbl.is.

Um fram­haldið sagði Sæv­ar. „Nú er bara að sjá hverj­ir verða klár­ir á sunnu­dag. Það er al­gjör óvissa með Nicklas og svo eru alltaf ein­hverj­ir sem þarf að tjasla sam­an. Nú er staðan bara 1:1 og við bún­ir að spila við ÍR þris­var á skömm­um tíma. Odda­leik­ur­inn mun ráðast á smá­atriðum og því að taka skyn­sam­ar ákv­arðanir. Við reyn­um að halda mis­tök­um í lág­marki og þá er allt hægt“ sagði Sæv­ar að lok­um.


Sævar spáir í spilin á bekknum

Ingvar: Ótrú­lega svekkt­ur

Ekki kann­ast marg­ir við hand­bolta­mann­inn Ingvar Heiðmann Birg­is­son, leik­mann ÍR. Hann er bú­inn að æfa hand­bolta með KA, Ak­ur­eyri og ÍR í tæp fimm ár og er mjög vax­andi leikmaður. Var hann á sín­um gamla heima­velli í kvöld þegar ÍR sótti Ak­ur­eyri heim í úr­slita­keppni Olís-deild­ar­inn­ar. Ekki sótti hann gull í greip­ar gömlu liðsfálag­anna því Ak­ur­eyr­ing­ar unnu að lok­um, 23:20 eft­ir æsi­leg­ar loka­mín­út­ur.

Stóð Ingvar sig virki­lega vel í leikn­um og hrósaði Sturla Ásgeirs­son hon­um sér­stak­lega. Sveitastrák­ur­inn úr Gull­brekku í Eyjaf­irði var grip­inn í viðtal eft­ir leik. „Ég er alltaf að bæta mig og fæ alltaf að spila meira og meira. Ég er líka með frá­bæra þjálf­ara og mót­tök­urn­ar sem ég fékk þegar ég kom suður í haust hefðu ekki getað verið betri. Ég byrjaði að æfa þegar ég var 16 ára og fór í skóla inni á Ak­ur­eyri. Í vet­ur er ég bú­inn að æfa mjög vel og það er að skila sér.“

Um leik­inn sagði Ingvar „Við vor­um al­veg komn­ir með þá þarna í rest­ina en síðustu sókn­irn­ar voru ekki nógu vel nýtt­ar og því fór sem fór. Í raun er ég ótrú­lega svekkt­ur að hafa ekki klárað dæmið. Þetta var bara enn einn hörku­leik­ur­inn og við erum klár­ir í odda­leik­inn. Við erum fersk­ir og í góðu standi svo við kvíðum engu fyr­ir sunnu­dag­inn, jafn­vel þótt það vanti Björg­vin í hóp­inn. Við spil­um bara á þeim sem eru klár­ir og það geng­ur bara vel.“


Norðanmaðurinn Ingvar Heiðmann skoraði tvö mörk fyrir ÍR í leiknum



Næst kíkjum við á Vísi en þar var Siguróli Magni Sigurðsson sem tók viðtöl við þá Heimi Örn Árnason leikmann Akureyrar og Bjarna Fritzson spilandi þjálfara ÍR. Þeir kumpánar voru einmitt saman við völd hjá Akureyrarliðinu en eigast nú við.

Heimir Örn: Með þessa vörn er allt hægt

Heimir Örn Árnason átti góðan leik í kvöld og var hann léttur í bragði þegar blaðamaður Vísis náði af honum spjalli:

„Við spilum frábærlega í 45 mínútur í kvöld og það dugði til. Þetta var ekki fallegasti sigurinn en þetta hafðist“ sagði Heimir léttur.

„Við skorum ekki alltof margar mínútur í seinni hálfleik, það kom svona klassískt stress, veturinn undir og allt það. Ég og fleiri vorum ekki að hitta og Arnór varði allt of mikið en við fáum annan séns og þurfum að spila betri sókn á sunnudaginn. Með þessa vörn er samt allt hægt," sagði Heimir.

ÍR-ingar voru án Björgvins Hólmgeirssonar í dag og munar um minna: „Auðvitað vantaði Bjögga en mér fannst samt Daníel frábær í fyrri hálfleik – það koma alltaf nýir menn inn í staðin“ sagði Heimir

„Það er allt eða ekkert á sunnudaginn. Við vorum gíraðari núna en á þriðjudaginn síðasta en samt vantar ennþá að ná upp geðveiki í fullar 60 mínútur. Það vantar aðeins meiri ástríðu, við eigum það inni“ sagði Heimir og bætti við: „Sumarfrí í snjó er ekki freistandi.“


Það hefur mætt mikið á Heimi í einvíginu gegn ÍR

Bjarni: Dómararnir bara með dónaskap

Bjarni Fritzson, spilandi þjálfari ÍR, var langt frá því að vera sáttur eftir að hafa þurft að þola þriggja marka tap á Akureyri í kvöld en norðanmenn tryggðu sér með því oddaleik í Austurberginu á sunnudaginn.

„Við vorum komnir með leikinn í okkar hendur en tökum slæmar ákvarðanir á þeim kafla og þannig tapast þetta. Þetta hefði alveg getað verið okkar dagur en þá hefðum við þurft að slútta betur. Við vorum að spila vel þar til það voru fimm mínútur eftir og þá förum við í einhverja steypu,“ sagði Bjarni.

Leikurinn var afar kaflaskiptur og skiptust liðin á að skora ekki í fleiri mínútur í einu. Bjarni taldi það vera sök dómaranna, að þeir væru að flauta leikinn kaflaskiptan:

„Ég hef bara ekki séð annað eins í allan vetur. Það voru dómar hérna sem ég skil ekki. Leikurinn er kaflaskiptur því að þeir taka í taumana. Það er ekkert samræmi milli helminga“ sagði Bjarni og hélt áfram:

„Þeir eru á tíma að flauta okkur út úr þessum leik. Þetta eru 8-liða úrslit sem að við höfum verið að berjast fyrir í allan vetur og svo fáum við svona. Þetta er ekki ásættanlegt. Það er ekki hægt að bjóða mönnum sem leggja svona mikla vinnu í veturinn upp á svona dómara," sagði Bjarni.

Jón Heiðar Gunnarsson fékk umdeilt rautt spjald og hafði Bjarni sína skoðun á því og hvernig dómararnir tóku á málinu:

„Síðan er ekki hægt að tala við þá [dómarana innsk. blm.]. Þeir eru bara með dónaskap og henda mönnum hérna útaf með rautt spjald þegar menn eru að reyna að fá útskýringu einhverju, sem er alveg ótrúlegt. Þetta var bara slæmur árekstur, þetta er bara einn dómur af fjölmörgum. Þetta er það ótrúlegasta sem ég hef séð. Þeir dæma eitthvað öðru megin, og allt annað hinum megin – ekkert samræmi. Það er mjög leiðinlegt að upplifa að maður sé að spila leik sem er ekki sanngjarn og heiðarlegur.“ sagði Bjarni gríðarlega svekktur.


Bjarni hressir sig í leikhléi undir lok leiksins

Siguróli Magni Sigurðsson stóð greinilega í ströngu í gær en ásamt því að lýsa leiknum fyrir Vísi tók hann Sverre Andreas Jakobsson í viðtal fyrir Sport.is, það má sjá hér:



Stærsti leikur tímabilsins

10. apríl 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri – ÍR 2. leikur úrslitanna

Það styttist í stórleikinn, hann hefst klukkan 19:00 og væntanlega hefur ekki farið framhjá neinum að Akureyri verður að sigra í kvöld og þarf stuðning til að klára verkið. Áhorfendur eru okkar áttundi maður á vellinum og gefa leikmönnum svakalegan aukakraft! Þannig að nú treystum við á að handboltaáhugamenn norðurlands flykkist í Höllina og leggi sitt lóð á vogarskálarnar til að við fáum alvöru handbolta lengra fram á vorið!

Fyrir þá stuðningsmenn sem ekki eiga heimangengt verðum við með beina textalýsingu sem birtist hér á heimasíðunni vel fyrir leik. Eins og áður segir þá hefst leikurinn klukkan 19:00 í Höllinni í kvöld, ekki láta þig vanta!



Atli lofar baráttuleik á föstudaginn

9. apríl 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Einfaldlega allt undir á föstudagskvöldið

Nú er komið að okkur gott fólk! Akureyri tekur á móti ÍR í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins og verður að sigra!

Sigri Akureyri knýr liðið fram oddaleik en tapist leikurinn er tímabilið búið. Nú verðum við einfaldlega að troðfylla Höllina og sjá til þess að strákarnir sigri, áfram Akureyri!

Athugið að leikurinn hefst klukkan 19:00 á föstudaginn (ekki 19:30 eins og upphaflega var fyrirhugað).

Við fengum að kynnast því á þriðjudaginn að færð og veður getur truflað og því hvetjum við þig til að fylgjast með fréttum, t.d. hér á heimasíðunni ef veðurútlit á föstudaginn verður vafasamt!

Annars er óþarfi að hafa mörg orð um þennan leik, strákarnir eru komnir með bakið upp að vegg og ætla að leggja alla sína orku í leikinn og knýja fram þriðja leikinn á sunnudaginn.

Líkt og Atli Hilmarsson sagði eftir fyrsta leikinn: „Nú er að duga eða drepast á föstudaginn og ekkert annað að gera en treysta á okkur sjálfa og okkar frábæra stuðningsfólk. – Áfram Akureyri!


Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson