 Rúnar segir Akureyri eiga að spila um stóra hluti strax á næsta ári
| | 2. ágúst 2006 - SÁ skrifar
Rúnar: Strax á næsta ári á liðið að spila um eitthvaðRúnar Sigtryggsson og Sævar Árnason munu fá það krefjandi verkefni að þjálfa Akureyri Handboltafélag á komandi leiktíð. Heimasíðan talaði við Rúnar og spurði hann úti í hvernig honum litist á þetta verkefni. Rúnar sagði meðal annars að markmið liðsins væri að keppa um titla á komandi árum en fer varkárlega í komandi tímabil.
SÁ: Jæja Rúnar, þá er það Akureyri Handboltafélag. Hvernig líst þér á það? Rúnar: Mér líst vel á það verkefni. Ég lít á þetta sem gott tækifæri. Það munu skapast heilmörg vandamál við þetta en mér finnst að menn eigi fyrst og fremst að horfa á tækifærin sem eru að skapast við þetta. Ekki að horfa bara á gallana eins og hefur verið gert svolítið mikið af í umræðunni.
SÁ: Þú ert ráðinn þjálfari liðsins, hvernig leggst það verkefni í þig? Rúnar: Bara vel. Þetta er stór hópur og mjög efnilegir strákar þarna.
SÁ: Hvernig heldur þú að leikmenn liðsins munu taka því að spila allt í einu sem samherjar nú eftir að hafa verið erkifjendur í mörg ár? Rúnar: Það verður bara að koma í ljós. Þeir sem að taka því illa hafa náttúrulega ekkert hingað að gera og þá kemur bara maður í manns stað. Það eru yfir 20 manns að æfa núna og ég sé engin vandamál.
SÁ: Nú þegar æfingarnar eru að byrja, hvernig standi eru leikmenn í? Rúnar: Þeir eru í misjöfnu. Ég er ánægður með flesta leikmenn myndi ég segja miðað við fyrstu æfingarnar.
SÁ: Nú sameinast tvö lið í eitt. Hvernig finnst þér liðið mannað miðað við önnur lið í deildinni? Rúnar: Hvað getur maður sagt? Liðið er miðlungs lið eins og er í fyrstu deild en það er mjög stutt upp og mjög stutt niður í þessu móti. Ef við hugsum svo um að það fellur 1/4 af deildinni þá má ekkert út af bera.
SÁ: Hvaða kröfur finnst þér mega gera á liðið svona til að byrja með? Rúnar: Til að byrja með að halda sætinu í deildinni, það er alla vega fyrsta krafa. Svo verður að sjá til hvernig úr þessu spilast.
SÁ: Þegar farið er í eins mikla framkvæmd og að sameina KA og Þór þá hlýtur það að vera markmið að verða eitt af stærri liðum á landinu á komandi árum? Rúnar: Jú, ég myndi segja strax á næsta ári þá á þetta lið að spila um eitthvað, vera virkilega tekið alvarlega í toppbaráttunni og vinna eitthvað. Það hlýtur að vera markmiðið með þessu því annars væru menn ekki að þessu.
Við þökkum Rúnari innilega fyrir spjallið. |