Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sævar þurfti ekki að fela KA merkið á þessari mynd

3. ágúst 2006 - ÁS skrifar 

Karlalið Akureyrar til Danmerkur á æfingamót

Karlalið Akureyrar handboltafélags mun fara til Danmerkur dagana 17.-22. ágúst. Væntanlega mun liðið leika þrjá leiki og þar á meðal við lið Ajax Heroes, en Hannes Jón Jónsson fyrrverandi leikmaður ÍR leikur með þeim. Mótið fer fram í Kaupmannahöfn en að sjálfsögðu mun heimasíðan fylgjast vel með gengi liðsins á mótinu.

Eins og hefur komið fram á heimasíðunni þá er æfingahópur liðsins frekar stór og er mikill hugur í mönnum. Eitt er víst að framhaldið verður mjög áhugavert og verður virkilega gaman að fylgjast með Akureyri Handboltafélagi (eða A.H.) á komandi tímabili.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson