 Þrjú töp en þó stígandi í liðinu
| | 22. ágúst 2006 - SÁ skrifar
Þriðja tapið í DanmörkuAkureyri lék þriðja og seinasta leik Danmerkurferðarinnar í gær en mótherjarnir voru Lyngby HK. Þrátt fyrir tap í leikjunum tveimur á undan hafði verið stígandi í liðinu og hélt hann áfram í dag. Liðið, sem var án Magnúsar Stefánssonar í leiknum, var oft í fyrri hálfleik að gera flotta hluti en liðu gríðarlega fyrir slaka markvörslu í leiknum og aðeins eitt skot varið fyrstu 27 mínúturnar. Því lenti liðið strax nokkuð undir og munurinn 6 mörk í hálfleik, 17-11. Í seinni hálfleik kom markvarslan og komst Akureyri þá nær Dönunum. Margt jákvætt var í spilamennsku liðsins í seinni hálfleiknum en leikurinn var ansi kaflaskiptur eins og hinir tveir. Að lokum unnu Danirnir 28-24 en Akureyri komst þó nær Lyngby HK en það.
Ansi mikill stígandi þótti vera í liðinu í þessari ferð og náðu menn alltaf meira og meira saman eftir því sem á leið. Það er náttúrulega klárt að þegar tvö lið eru sett saman í eitt þá er erfitt að ná saman til að byrja með og var sú raunin í þessari ferð. Það batnaði hins vegar mikið og liðið að spila fínasta handbolta að hluta til í þessum leik og leiknum deginum áður. Þá verður einnig að taka með í reikninginn að danska deildin byrjar mánuði fyrr en sú íslenska og Danirnir því mun lengra komnir í sínum undirbúningi,
Meira um Danmerkurferðina mun koma á morgun hér á KA-sport. |