 Sævar bjartsýnn þrátt fyrir þrjú töp
| | 23. ágúst 2006 - SÁ skrifar
Sævar: Var allt mjög kaflaskiptAkureyri Handboltafélag kom til landsins í gærkvöldi og var heimasíðan mætt að taka á móti liðinu. Við spjölluðum við Sævar Árnason um ferðina og var hann bara ansi jákvæður og taldi ferðina fína og að hún myndi nýtast liðinu vel. Aðspurður um hvort að þrjú töp í þessari ferð séu vonbrigði svaraði hann: "Nei, nei ekkert þannig lagað. Það eru vonbrigði að hafa ekki unnið alla vega einn leikinn, við hefðum alveg getað gert það. Úrslitin hins vegar skipta engu máli, við vorum ekki að fara í þessa ferð til að ná einhverjum úrslitum heldur sjá ákveðna hluti hjá einstaka leikmönnum og liðinu í heild." Um leikina og spilamennsku liðsins var hann bara hæfilega bjartsýnn og sagði meðal annars: "Þetta var allt mjög kaflaskipt. Við tókum svona góða kafla og svo slæma kafla inn á milli sem er bara eðlilegt þar sem við erum tiltölulega nýbyrjaðir að æfa svona í alvöru handboltaæfingum. Það er ennþá einn og hálfur mánuður í mót. Þannig að við erum bara rétt að byrja og þessi ferð var ágæt, menn fengu að æfa handbolta í 5 daga og spila. Svo þjappaðist hópurinn líka saman, þessar ferðir eru líka til þess." Sævar vildi svo meina að vel hefði sést að Danirnir væru komnir mun lengra í sínum undirbúning þar sem danska deildin hefst mánuði fyrr en sú íslenska en handboltalegt form þeirra var allt annað en hjá Akureyri. |