 Karim Yala þegar hann var með KA
| | 24. ágúst 2006 - SÁ skrifar
Hvar er Karim Yala nú?Alsíringurinn Karim Yala er maður sem er Akureyringum vel kunnugur en hann lék eitt tímabil með KA, 1997-1998. Yala kom árið eftir að KA var Íslandsmeistari og lék ágætlega með liðinu en með hann innanborðs varð liðið deildarmeistari. Í úrslitakeppninni féll liðið út gegn Val í undanúrslitum. Yala hvarf á braut eftir tímabilið og tók ekki minni maður en Lars Walter, þjálfari í Meistaradeildinni í dag, við af honum.
Af Karim er allt gott að frétta og þó svo að hann sé 39 ára gamall í dag er hann enn í fullu fjöri en hann er að leika með Nantes í frönsku B-deildinni eða sömu deild og Jónatan Þór Magnússon leikur í nú. Á seinustu leiktíð var Yala 12. markahæsti leikmaður deildarinnar með 153 mörk í 25 leikjum en það þýða rúm 6 mörk í leik. Þegar maður rennir yfir þá leikmenn sem voru með fleiri mörk en Yala í deildinni kemur í ljós að allir léku fleiri leiki en hann og greinilegt að hann er að gera það gott hjá Nantes. Árið áður skoraði Karim 154 mörk þannig að hann er enn í toppformi og gaman verður að fylgjast með honum á komandi vetri. |