Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hafþór mun ekki leika með hinu nýja liði

1. september 2006 - ÁS skrifar 

Hafþór hættur og Guðmundur fer suður

Hafþór Einarsson markvörður KA á seinasta tímabili hefur ákveðið að hætta að stunda handbolta. Haffi byrjaði að æfa með hinu nýja liði Akureyrar Handboltafélags en hann var ekki valinn í hópinn sem fór til Danmerkur og ákvað eftir það að hætta. Þá mun Guðmundur Örn Traustason uppalinn leikmaður úr KA og leikmaður Þórs í fyrra ekki spila með liði Akureyrar vegna þess að hann er á leiðinni suður í nám.

Haffi er uppalinn í KA og hefur leikið allan sinn feril með félaginu fyrir utan þrjú tímabil þar sem hann spilaði með Þór. Með félaginu hefur hann orðið bikarmeistari, deildarmeistari og meistari meistaranna.

Guðmundur Örn Traustason mun fara eins og fyrr kom fram suður til að fara í nám mun væntanlega leita sér að nýju liði fyrir sunnan en Guðmundur er öflugur miðjumaður. Hann hefur alla tíð verið með KA fyrir utan síðasta tímabil þar sem hann spilaði með Þór til að fá fleiri spilmínútur.

Heimasíðan þakkar þeim Hafþóri og Guðmundi fyrir þeirra starf fyrir klúbbinn og vonar að þeim vegni vel í því sem þeir taka sér fyrir hendur.


Guðmundur Örn Traustason á æfingu með liði Akureyrar fyrr í sumar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson