 Ásbjörn fer til Danmerkur ásamt Heiðari og Sveinbirni
| | 17. október 2006 - ÁS skrifar
Þrír Akureyringar í U-18 landsliði ÍslandsLandslið Íslands skipað leikmönnum 18 ára og yngri var valið í dag og eru þrír Akureyringar í liðinu. Það eru þeir Ásbjörn Friðriksson, Heiðar Þór Aðalsteinsson og Sveinbjörn Pétursson. Landsliðið fer um helgina til Danmerkur og leikur á mánudaginn og þriðjudaginn (23.-24. okt.) tvo æfingaleiki við landslið Dana.
Allir drengirnir hafa verið að spila með meistaraflokki Akureyrar í leikjum tímabilsins, Ásbjörn leikur á miðju, Heiðar í vinstra horninu og Sveinbjörn er í markinu.
Heimasíðan óskar drengjunum til hamingju með landsliðssætin. Heimir Ríkarðsson er landsliðsþjálfari að venju. |