Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hvað gerist í kvöld?

25. október 2006 - SMS skrifar 

SS-Bikar kvenna: Leikið við FH í dag

Í kvöld fer fram leikur FH og Akureyrar í Kaplakrika en þetta er ekki í fyrsta skipti sem þessi lið mætast í vetur. Liðin mættust í KA heimilinu fyrr í vetur þar sem Akureyri spilaði frábæran fyrri hálfleik en náði ekki að láta hné fylgja kviði og töpuðu leiknum 18-21 og skoruðu aðeins 8 mörk í síðari hálfleik. Liðin áttust einnig við á Sjallamótinu í byrjun september og þá töpuðu stelpurnar okkar 12-19 í leik sem var 2x20 mínútur. Þetta er greinileg framför á liðinu þannig aldrei að vita nema að stelpurnar geri góða ferð suður í rigninguna og vinni FH-inga á heimavelli.

En að leiknum í kvöld þá er hann eins og ég áður skrifaði í Hafnarfirði klukkan 20:00 og er það að duga eða drepast enda er þetta leikur í bikarnum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson