Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Ásbjörn skoraði 2 mörk

25. október 2006 - ÁS skrifar 

U-18: Þriggja marka tap gegn Dönum

Í gær lék íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 18 ára og yngri annan æfingaleik við lið Danmerkur. Í fyrri leik liðanna tapaði Ísland með 10 mörkum en í gær var mun minni munur. Eftir að Danir höfðu leitt 16-15 þá endaði leikurinn 28-31.

Íslenska liðið bætti leik sinn frá fyrri leik liðanna og var í raun óheppið að ná ekki enn betri stöðu í leiknum. Sveinbjörn Pétursson markvörður Akureyrar meiddist í fyrri leiknum og lék ekki í gær. Ásbjörn Friðriksson miðjumaður Akureyrar skoraði 2 mörk í leiknum en Heiðar Þór Aðalsteinsson náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Markahæstur í liði Íslands var hinsvegar leikmaður HK, Ólafur Bjarki Ragnarsson, með 7 mörk.

Strákarnir okkar koma svo heim í dag.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson