 Guðmundur átti fína spretti í dag
| | 18. nóvember 2006 - SÁ skrifar
2. flokkur: Sigur á HK2. flokkur Akureyrar lék sinn fyrsta heimleik í dag þegar liðið mætti HK en sem kunnugt er mætast meistaraflokkslið liðanna á morgun. Akureyri var yfir lengst af í leiknum, leiddi 13-8 í hálfleik og vann að lokum 29-25 sigur. Við skulum kíkja nánar á leikinn.
HK byrjaði leikinn betur og komst í 1-3. Akureyri kom þá með næstu þrjú mörk og leiddi 4-3 en eftir það komst HK aldrei yfir. Smám saman nær Akureyri yfirhöndinni og komast í 8-5. Fram af hálfleik bætti liðið aðeins við muninn og staðan í hálfleik Akureyri 13, HK 8. Þrátt fyrir fimm marka forskot Akureyrar var spilamennska liðsins ekkert sérstök en í sókninni vantaði allan kraft og var boltinn að ganga illa milli manna.
Seinni hálfleikur var mjög svipaður þeim fyrri nema að mörkin voru nokkuð fleiri. Akureyri leiðir 20-15 en næstu þrjú mörk voru frá HK og staðan orðin 20-18. Eftir það var munurinn 2-3 mörk og komst HK aldrei nær Akureyri en það en Akureyri vann að lokum 29-25 sigur.
Þrátt fyrir að HK hafi náð að minnka muninn í tvo mörk var sigur okkar stráka aldrei í hættu. Það virtist engu skipta þó liðið væri að leika slaka sókn eða ætti slaka kafla, HK liðið var einfaldlega ekki í nógu góðum klassa til að sigra leikinn. Strákarnir eiga mjög mikið inni miðað við þennan leik en fyrir það fyrsta vantar allan kraft og hraða í leik liðsins. |