 Akureyri - HK á morgun klukkan 16:00 Mætið og hvetjið okkar menn!
| | 18. nóvember 2006 - SÁ skrifar
1 dagur í leik: Magnús í viðtaliÁ morgun verður stórleikur í KA-Heimilinu þegar Akureyri mætir HK klukkan 16:00. Mikil eftirvænting er fyrir leiknum en Akureyri hefur verið að leika afar vel að undanförnu. Heimasíðan fékk Magnús Stefánsson í viðtal og spurðum við hann út í leikinn.
SÁ: Magnús, hvernig eru menn stemmdir fyrir leikinn gegn HK á morgun? Magnús: Menn eru bara mjög vel stemmdir, það er ekki hægt að segja annað. Þetta leggst bara afskaplega vel í okkur alla og er mikil stemmning búin að vera í hópnum undanfarið og mikil tilhlökkun.
SÁ: Já þegar vel gengur þá hlýtur andinn að vera hátt uppi? Magnús: Já, hann er alveg á toppnum núna og við búumst við mikið af fólki í húsið á morgun og þetta getur ekki orðið annað en besta skemmtun.
SÁ: HK liðið hefur verið að leika vel hingað til. Hvað þurfið þið að gera á morgun? Magnús: Við verðum að spila agaðan sóknarleik og enda það með skotum úr bestu færunum sem við finnum. Þeir eru með góðan markmann og fljóta menn fram á við. Við verðum bara að spila vel heilt yfir, það má hvergi slaka á.
SÁ: Heldur þú að þið eigið ekki örugglega að geta unnið HK? Magnús: Jú ekki nokkur spurning, það er alveg á hreinu. Það er ekkert sem segir okkur annað en við eigum að geta unnið.
SÁ: Áhorfendur? Magnús: Þeir koma til með að skipta mjög miklu máli núna og gera það svona heilt yfir. Það eru oft þeir sem kveikja í liðinu þegar illa gengur og þeir hvetja mann áfram.
SÁ: Þannig að þú vonast eftir fjölmenni? Magnús: Ég vonast til að sem flestir mæti og láti sjá sig og hafi gaman af. Þetta ætti að verða snilldar leikur.
Við hvetjum fólk enn og aftur að mæta á leikinn en það er óhætt að lofa gríðarlegri skemmtun að þessu sinni. Leikurinn hefst 16:00 í KA-Heimilinu á morgun, sunnudag. |